Dýrasöfn
Dýrasöfn Náttúrufræðistofnunar geyma yfir 300 þúsund tegundasýni, sem nýtast meðal annars til rannsókna á breytileika tegunda, flokkun og útbreiðslu. Eldri safneintök veita mikilvægar upplýsingar um þróun lífríkis og áhrif umhverfisbreytinga, meðal annars með samanburði á efnamengun í núlifandi dýrum. Safnið veitir einnig aðgang að sjaldgæfum sýnum og lánar eintök til rannsókna og sýninga samkvæmt reglum stofnunarinnar. Hryggdýrasafn
Í hryggdýrasafni Náttúrufræðistofnunar eru varðveittir fuglshamir, uppstoppaðir gripir, bein, egg og hreiður, auk annarra sýna úr hryggdýrum. Á árinu 2025 var unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum söfnun, skráningu og varðveislu safnkosts.
Unnið var að hamskurði og uppstoppun fugla til varðveislu í hamasafni, fláningu hvítabjarnar, þar sem skinn og hauskúpa voru varðveitt í safninu, og að vinnslu sýna úr leðurblökum. Gengið var frá 11 leðurblökum sem villst höfðu hingað til lands á undanförnum árum, þar af tveimur tegundum sem ekki hafa áður fundist hér á landi. Fugla- og spendýrabeinagrindur voru unnar, skráðar í gagnagrunn og komið fyrir í safnskála. Unnið var í eggjasafni, annars vegar með því að blása úr eggjum sem safnað var fyrir stofnunina og hins vegar með greiningu og skráningu eggja úr eldra eggjasafni sem varðveitt hafði verið á Akureyri. Í því safni eru egg 52 fuglategunda sem hafa verið skráð í gagnagrunn og eru nú varðveitt í safnaskála. Nokkrar krufningar voru gerðar á fjölda sjálfdauðra fugla, einkum svartfuglum, ritum og stórum máfum, og niðurstöður teknar saman í skýrslu.
Skráning safnkosts í gagnagrunn var áfram umfangsmikil því þrátt fyrir að stór hluti safnkostsins sé skráður í grunninn á enn eftir að yfirfara og tékka af ýmislegt.
Fjöldi innlendra og erlendra gesta óskar á hverju ári eftir að skoða safnið eða ákveðna gripi í safninu. Oft er um að ræða vísindafólk sem notar gripi, sýni eða seríur í safninu til rannsókna eða listafólk sem fær innblástur við að skoða gripi í safninu, tekur ljósmyndir, teiknar eða notar ákveðin form við listsköpun. Fjöldi fyrirspurna barst um ýmislegt tengt hryggdýrum frá almenningi í tölvupósti og síma.