Kortasjár
Kortasjár eru mikilvægur þáttur í miðlun gagna Náttúrufræðistofnunar og gera almenningi, stjórnvöldum og sérfræðingum kleift að nálgast og skoða upplýsingar um náttúru Íslands á gagnvirkan hátt. Sérhæfðar kortasjár stofnunarinnar eru aðgengilegar á vef hennar og unnið er að því að samþætta þær í eina sameiginlega kortasjá Náttúrufræðistofnunar, sem safnar saman gögnum stofnunarinnar á einum stað. Með þessu er stuðlað að samræmdu aðgengi að landfræðilegum gögnum og auknu gagnsæi í upplýsingagjöf.
Á árinu var markvisst unnið að þróun og uppfærslu nokkurra kortasjáa.
Vistgerðir á Íslandi
Kortasjá um vistgerðir á Íslandi er ein af lykilgáttum að vistfræðilegum gögnum Náttúrufræðistofnunar. Hún var fyrst gefin út árið 2016 og nær til landvistgerða, ferskvatnsvistgerða og fjöruvistgerða, auk mikilvægra fuglasvæða. Kortasjáin veitir upplýsingar um útbreiðslu og verndargildi vistgerða og er nýtt við skipulagsgerð, náttúruvernd, rannsóknir og stefnumótun og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja gagnsætt og samræmt aðgengi að upplýsingum um náttúru landsins. Á árinu 2025 var áfram unnið að undirbúningi heildarendurskoðunar landvistgerðakortsins. Sú vinna felur meðal annars í sér nýtingu gervitunglagagna, þróun sjálfvirkra flokkunaraðferða og uppbyggingu staðreyndasafns vettvangsskráninga sem nýtist bæði við þjálfun flokkunarlíkana og sannprófun niðurstaðna. Samhliða hafa verið gerðar leiðréttingar og uppfærslur á gildandi útgáfu kortsins og tekið er við ábendingum um úrbætur.
Örnefnasjá
Örnefnasjá er gagnvirk kortasjá sem veitir aðgang að örnefnum úr örnefnagrunni Náttúrufræðistofnunar. Í kortasjánni geta notendur leitað að örnefnum, skoðað staðsetningu og afmörkun þeirra á korti og nálgast skráðar upplýsingar og heimildir þegar þær liggja fyrir. Á árinu 2025 var unnið að áframhaldandi uppfærslum og samræmingu gagna í kortasjánni í takt við þróun örnefnagrunnsins. Í lok árs voru skráð um 193.000 örnefni í grunninum og eru þau aðgengileg í gegnum kortasjána. Skráning og staðsetning örnefna byggir að verulegu leyti á framlagi einstaklinga með staðbundna þekkingu, sem vinna úr örnefnalýsingum og öðrum heimildum fyrir þau svæði sem þeir þekkja best.
Skjámynd úr Örnefnasjá Náttúrufræðistofnunar.Loftmyndasjá
Loftmyndasjá er gagnvirk kortasjá með sögulegum loftmyndum úr safni Náttúrufræðistofnunar. Hún var opnuð árið 2023 og eru myndirnar aðgengilegar til niðurhals án gjaldtöku. Með sjánni er unnt að greina breytingar á landslagi og byggð í tímans rás, svo sem hopun jökla, hraunflæði, landnýtingu og útbreiðslu gróðurs. Hún nýtist við rannsóknir, skipulagsvinnu og kennslu, sem og við sögulega greiningu og mat á þróun landsins. Á árinu 2025 var áfram unnið að því að gera eldri loftmyndir aðgengilegar í sjánni og bæta framsetningu og leitarmöguleika. Í lok árs voru um 30.000 loftmyndir aðgengilegar í sjánni eða um 20% loftmyndasafnsins.
Umbrotasjá
Umbrotasjá er kortasjá sem miðlar gögnum um jarðhræringar og eldsumbrot. Sjáin varð til í kjölfar eldsumbrota á Reykjanesskaga og sýnir nýjustu loftmyndir, hæðarlíkön og kort, auk annarra gagna sem varpa ljósi á hraunrennsli, landslagsbreytingar og þróun gosstöðva. Gögnin eru unnin í samstarfi sérfræðinga frá Náttúrufræðistofnun, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Á árinu 2025 varð eitt eldgos á Reykjanesskaga og var unnið að öflun og úrvinnslu gagna í tengslum við það. Gögnin voru unnin og gerð aðgengileg í Umbrotasjá aðeins nokkrum klukkustundum eftir að mælingum lauk.
Þrívíddarlíkön
Þrívíddarlíkön eru mikilvægur þáttur í sjónrænni miðlun gagna Náttúrufræðistofnunar og gera kleift að sýna landslag, form og breytingar á landi með skýrum og gagnvirkum hætti. Líkönin byggja á loftmyndum, ýmist teknum úr flugvél eða með dróna, sem unnar eru með myndmælingatækni. Umfang verkefna við loftljósmyndastofu Náttúrufræðistofnunnar var minna árið 2025 en á árunum á undan, enda gaus aðeins einu sinni á Reykjanesskaga það ár. Þrátt fyrir það var unnið að nokkrum mikilvægum verkefnum. Auk tveggja þrívíddarlíkana af gossvæðinu á Reykjanesskaga var unnið nýtt líkan af Surtsey og annað af svæði sem nær yfir Hvannadal, Jökulsárgljúfur og Jökulgilstinda í Sveitarfélaginu Hornafirði. Að auki var stofan nýtt af nemendum og rannsóknarhópum við úrvinnslu líkana fyrir ýmis verkefni.
Þrívíddarlíkan af Surtsey.