Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Ársreikningur fyrir árið 2025 er birtur í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál og eru tölur bornar saman við árið 2024.
Líkt og árið 2024 féll nokkur einskiptiskostnaður á stofnunina á árinu 2025 vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Rannsóknastöðvarinnar við Mývatn sem tók gildi 1. júlí 2024. Á árinu 2026 má gera ráð fyrir einhverjum viðbótar einskiptiskostnaði vegna sameiningarinnar, en hann verður þó mun minni en síðustu tvö ár. Gera má ráð fyrir að jafnvægi náist í rekstrinum á árinu 2027.
Framlag ríkissjóðs til rekstrar nam 1.407 milljónum króna. Sértekjur námu 139 milljónum króna og komu að mestu frá innlendum og erlendum stofnunum vegna verksamninga, styrkja og ráðgjafarverkefna fyrir einkaaðila.
Stærsti gjaldaliður stofnunarinnar eru laun og launatengd gjöld, samtals um 987 milljónir króna.  Aðrir gjaldaliðir námu tæplega 575 milljónum króna.

Rekstrarreikningur

Tekjur
2025
2024
Framlag Ríkissjóðs
1407.600.000
1.232.000.000
Sértekjur
139.410.069
336.541.578
Tekjur samtals
1.547.010.069 
1.568.541.578 
Rekstrargjöld
Laun og launatengd gjöld
987.525.967 
922.027.648 
Ferðir og fundir
32.791.622
52.145.598
Rekstrarvörur
30.063.557
38.377.679
Aðkeypt þjónusta
219.859.252 
212.870.930
Húsnæði
258.661.604
276.633.712
Bifreiðar og vélar
8.032.435 
7.403.996 
Rekstrarkostnaður
191.614
123.158 
Tilfærslur
26.383.462 
4.000.000 
Rekstrargjöld samtals
1.563.509.513 
1.513.582.721
Afkoma ársins
-16.499.444
54.958.857