Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Dýrafræðirannsóknir Náttúrufræðistofnunar miða að því að efla þekkingu á dýralífi Íslands, fjölbreytni þess, útbreiðslu og breytingum í stofnum og búsvæðum. Verkefnin spanna rannsóknir og vöktun á hryggleysingjum, fuglum og spendýrum, auk rannsókna á erfðafræði, vistfræði og landnámi nýrra tegunda.

Botndýr á Íslandsmiðum

Markmið verkefnisins Botndýr á Íslandsmiðum (BioIce) er að byggja upp heildstæða þekkingu á tegundafjölbreytni botnlægra hryggleysingja innan íslenskrar efnahagslögsögu. Það er gert með því að efla flokkunarfræðilegar rannsóknir á sjávarhryggleysingjum, safna og varðveita eintök af hverri tegund í vísindasafni og skrá útbreiðslu og algengi tegunda í samræmdan gagnagrunn. Verkefnið á rætur að rekja til fyrsta leiðangurs sumarið 1991 og var formlega sett af stað árið 1992 í umsjá þáverandi umhverfis- og auðlindaráðuneytis, sem samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar, Hafrannsóknastofnunar, Háskóla Íslands, Sandgerðisbæjar og fjölda erlendra sérfræðinga og stofnana. Sýnatöku lauk árið 2004 og frumvinnslu sýna árið 2012. Frá þeim tíma hafa Náttúrufræðistofnun og Hafrannsóknastofnun haft yfirumsjón með flokkunarfræðilegum rannsóknum og skráningu gagna. Síðustu fjögur árin hefur sérstök áhersla verið lögð á rannsóknir á kóral- og svampdýrum, sem hvorir tveggja eru tegundahópar sem móta einstaklega lífrík búsvæði á hafsbotni. Niðurstöðum verkefnisins er að hluta til miðlað á vef stofnunarinnar og með útgefnu efni. 
Í árslok 2025 lágu fyrir í gagnagrunni verkefnisins upplýsingar um 20.932 sýnatökustaði botnlægra sjávarhryggleysingja. Á þessum stöðum höfðu verið skráðir 182.895 fundarstaðir tegunda og stærri flokkunarheilda. Nánari umfjöllun er í kafla um dýrasöfn.
Á fyrstu mánuðum ársins 2025 voru 1.370 fiskar úr verkefninu lengdarmældir og greindir til 78 tegunda í samstarfi við Jónbjörn Pálsson, áður sérfræðing á Hafrannsóknastofnun, sem lést í febrúar 2026.
Í september 2025 dvaldi erlendur sérfræðingur frá Háskólanum í Alicante á Spáni í Þekkingarsetrinu í Sandgerði við rannsóknir á eintökum af möttuldýrum (Ascidicacea) úr vísindasafni Náttúrufræðistofnunar. Nú eru þekktar 82 tegundir möttuldýra á Íslandsmiðum, byggt á greiningum á 32.747 eintökum. Þar af hefur sami sérfræðingur greint 14.699 eintök, einkum úr verkefninu botndýr á Íslandsmiðum (BIOICE).
Árið 2025 voru birtar niðurstöður válistaflokkunar (IUCN) fyrir nokkrar tegundir íslenskra kaldsjávarkórala. Vinnan var framhald af fjölþjóðlegu námskeiði í greiningu kóraltegunda sem haldið var í Þekkingarsetrinu í Sandgerði tveimur árum fyrr. Hún byggði að mestu á eintökum úr vísindasafni Náttúrufræðistofnunar og útbreiðslu- og myndagögnum Hafrannsóknastofnunar. Þetta var í fyrsta sinn sem válistaflokkun kaldsjávarkórala var gerð.
Alls voru metnar 22 tegundir kórala í Norður-Atlantshafi sem fóstra tegundaríkar vistgerðir, og þar af eru 16 hér við land. Niðurstöðurnar birtust í vísindaritinu Marine Biodiversity. Af þessum tegundum voru átta taldar í yfirvofandi hættu (NT), tíu í lítilli hættu (LC) og fyrir þrjár tegundir lágu ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar (DD). Tegundin postulínskórall (Desmophyllum pertusum) var metin viðkvæm á heimsvísu. Á íslensku hafsvæði eru þekktar rúmlega 70 tegundir kórala, þar með taldar þær 16 tegundir sem móta vistgerðir.HryggleysingjarHryggleysingjar sem finnast neðan fjöru, talið frá vinstri: ígulker (Gracilechinus alexandri), krossfiskur (Bathybiaster vexillifer), mosadýr (Hornera lichenoides) og sælilja (Heliometra glacialis). Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Hafrannsóknastofnun.

Nýir landnemar smádýra

Náttúrufræðistofnun fylgist með þróun smádýrafánu landsins, þar á meðal landnámi nýrra tegunda. Þegar tegund finnst, sem ekki hefur verið skráð áður, er þó ekki sjálfgefið að hún sé nýr landnemi. Í sumum tilvikum kunna tegundir að hafa verið til staðar um lengri tíma án þess að orðið hafi vart við þær. Breyttar umhverfisaðstæður, svo sem hlýnandi loftslag, geta aukið lífsskilyrði þeirra og gert  þær sýnilegri.
Leit að fágætum tegundum krefst sérþekkingar og skipulagðrar vinnu. Stöðugt berast til landsins tegundir sem áður hafa ekki átt hér náttúruleg heimkynni. Flestar þeirra koma með innfluttum varningi en sumar berast hingað af eigin rammleik. Hlýnandi loftslag og aukin gróðursæld stuðla að því að fleiri tegundir geti lifað og fjölgað sér hér. Oft er þó óljóst hvenær nýfundnar tegundir hafa náð varanlegri fótfestu, þar sem landnám getur tekið nokkur ár. Aukinn innflutningur eykur einnig líkur á að smádýr berist til landsins og geta sum þeirra reynst skaðvaldar á gróðri.
Ljósgildrur sem notaðar eru við fiðrildavöktun hafa reynst mikilvæg tæki til að fylgjast með nýjum tegundum og útbreiðslu þeirra. Meðal tegunda sem nýlega hafa numið hér land og virðast hafa fest sig í sessi eru birkikemba (Heringocrania unimaculella), birkiglitmölur (Argyresthia goedartella), grenivefari (Epinotia tedella) og vorflugan Micropterna sequax. Haustið 2025 fannst moskítóflugan Culiseta annulata í fyrsta sinn í íslenskri náttúru í ljósgildru á Mógilsá í Kollafirði. Skömmu síðar greindist hún einnig í Kjós. Þá bárust tilkynningar um moskítóflugur í hesthúsi í Ölfusi, þar sem safnað var hundruðum eintaka sem reyndust tilheyra Culex pipiens f. molestus.
Barkarbjöllur tilheyra ranabjallnaætt (Curculionidae) og verpa eggjum undir berki trjáa, þar sem lirfur grafa göng og þroskast. Þær geta valdið skemmdum á trjám og jafnframt borið sýkingar á milli þeirra. Frá árinu 2021 hafa vísbendingar bent til þess að barkarbjöllur kunni að hafa numið hér land, þótt staðfest eintök hafi ekki borist í upphafi. Ljósmyndir bentu þó til tilvistar þeirra. Á síðustu árum hafa tvær nýjar bjöllutegundir fundist á Mógilsá, sem geta lifað á eggjum og lirfum barkarbjallna, sem vakti frekari grun um tilvist þeirra.
Á árunum 2024 og 2025, frá vori til hausts, stóðu skordýrafræðingar frá Náttúrufræðistofnun og Landi og skógi fyrir rannsóknum á því hvort barkarbjöllur hefðu numið hér land. Settar voru út fallgildrur á Mógilsá og veiddist nokkur fjöldi barkarbjallna í þær. Einnig fannst þar fallinn sitkagrenibolur þakinn götum eftir bjöllur. Svipuð ummerki komu í ljós á trjábol í Heiðmörk, þar sem lirfur, púpur og nýklaktar bjöllur fundust. Í Fossvogi sáust einnig merki um barkarbjöllur en engin eintök fundust þar. Alls söfnuðust 159 barkarbjöllur á þessum tveimur árum og raðgreining hefur leitt í ljós að um er að ræða tegundina Hylastes cunicularius. Óvíst er hvort þessi tegund muni valda miklum skaða í íslenskri skógrækt en full ástæða er til að fylgjast grannt með útbreiðslu hennar. Fyrirhugað er að birta vísindagrein um barkarbjöllur á árinu 2026.
BarkarbjöllulifraBarkarbjöllulifra. Ljósm. Erling Ólafsson.
Mynd af moskitoMoskítóflugur (Culex pipiens). Ljósm. Matthías S. Alfreðsson.
Mynd af moskitoMoskítófluga (Culex pipiens). Ljósm. Erling Ólafsson.

Vöktun fiðrilda  

Vöktun fiðrilda hefur verið stunduð frá árinu 1995 í samstarfi við náttúrustofur landsins, Landbúnaðarháskóla Íslands og einstaklinga. Að loknum þremur áratugum samfelldrar vöktunar hefur vettvangsathugunum nú verið lokið í núverandi mynd. Vöktunin byggðist á söfnun fiðrilda með ljósgildrum sem starfræktar voru frá miðjum apríl fram í miðjan nóvember. Náttúrufræðistofnun hafði umsjón með vöktunarstöðvum í Kollafirði og Fljótshlíð og vann með heimamönnum að rekstri tveggja stöðva undir Eyjafjöllum. Greining sýna frá þessum fjórum stöðvum hefur farið fram á stofnuninni.
Gögn úr vöktuninni veita dýrmætar upplýsingar um fiðrildafánu landsins, samsetningu hennar og lífshætti tegunda. Einnig hefur verið hægt að fylgjast með flækingum frá meginlandi Evrópu og Bretlandseyjum. Niðurstöður sýna að fiðrildastofnar eru næmir fyrir sveiflum í veðurfari og breytingum á umhverfi, svo sem hlýnandi loftslagi, breytingum á gróðurfari og áhrifum náttúruhamfara, þar á meðal eldgosa.
Árið 2023 var tekinn í notkun nýr gagnagrunnur fyrir vöktunina og hafist handa við að tryggja örugga langtímavarðveislu gagnasería. Í byrjun árs 2026 innihélt grunnurinn upplýsingar um 942.036 greind eintök fiðrilda og vorflugna sem safnast hafa frá upphafi vöktunar. Árið 2025 voru greind til tegunda 26.437 fiðrildi og 2.928 vorflugur.
Árið 2026 verður nýtt til úrvinnslu, greiningar og birtingar gagna úr 30 ára gagnaröð stofnunarinnar. Samhliða því stendur til að endurskoða aðferðafræði vöktunarinnar, meðal annars vegna þess að kvikasilfursperur eru ekki lengur fáanlegar. Stefnt er að því að hefja vöktun á ný með LED-ljósgildrum vorið 2027.

Vöktun stórmítla

Náttúrufræðistofnun hefur frá árinu 2015 tekið þátt í verkefninu VectorNet á vegum European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC) og European Food Safety Authority (EFSA), þar sem fylgst er með útbreiðslu sýklabera í Evrópu. Á Íslandi felst þátttakan í vöktun stórmítla (Ixodidae), með sérstakri áherslu á skógarmítil (Ixodes ricinus), auk miðlunar upplýsinga um mítla og lúsmý (Culicoides riouxi ). Verkefnið hefur stuðlað að mikilvægu samstarfi við sérfræðinga hjá UK Health Security Agency.
Á Íslandi hafa fundist 12 tegundir stórmítla en aðeins þrjár þeirra teljast landlægar: lundamítill, klettamítill og brekkumítill. Skógarmítill er ekki talinn hafa náð hér fótfestu, þar sem ekki hefur tekist að sýna fram á að hann klári lífsferil sinn hér á landi. Undanfarin ár hefur markviss leit að skógarmítlum í íslenskri náttúru skilað takmörkuðum árangri en alls hafa 44 eintök fundist á þremur stöðum: í Mýrdal, á Skógum undir Eyjafjöllum og á Höfn í Hornafirði. Árangursríkara hefur reynst að safna skógarmítlum af farfuglum sem koma til landsins á vorin, í tengslum við fuglamerkingar.
Í samstarfi við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands var á árunum 2016–2025 safnað 1.705 skógarmítlum. Vorið 2025 söfnuðust 95 skógarmítlar á 22 skógarþröstum. Skógarþröstur er helsti hýsillinn sem ber mítla til landsins en þeir hafa einnig fundist á svartþresti, laufsöngvara, steindepli og þúfutittlingi.
Stór hluti sýnanna hefur verið rannsakaður með tilliti til sýkla í samstarfi við UK Health Security Agency og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið birtar í tímaritinu Parasites & Vectors.
Árið 2025 var lundamítlum (Ixodes uriae) jafnframt safnað úr sjófuglabyggðum víða um land í samstarfi við Náttúrustofu Suðurlands. Alls safnaðist 741 lundamítill, flestir í Vigur. Fyrirhugað er að rannsaka sýnin með tilliti til Borrelia burgdorferi s.l., það er hóps yfir 20 skyldra bakteríugerða, sem sumar eru þekktir orsakavaldar Lyme-sjúkdóms í mönnum.
mynd aflundamítliMynd af lundamítli. Ljósm. Erling Ólafsson.

Vetrarfuglatalningar

Vetrarfuglatalningar eru meðal elstu samfelldu vöktunarverkefna hér á landi og ná yfir flestar fuglategundir. Skipulagðar talningar á fuglum að vetrarlagi hófust árið 1952 og hafa farið fram árlega síðan. Unnið er eftir stöðluðum aðferðum og talningar fara fram á fyrirfram ákveðnum dögum í kringum áramót. Frá upphafi hefur áhugafólk um allt land lagt sitt af mörkum í sjálfboðavinnu og árlega taka yfir hundrað manns þátt í verkefninu. Markmiðið er að safna gögnum um fjölda og dreifingu fugla yfir vetrartímann og fylgjast með breytingum í stofnum þeirra.
Árið 2025 var 74. ár vetrarfuglatalninga á Íslandi en talningar fóru fram í  desember og í janúar 2026. Talið var á 213 svæðum og skráðir alls 149.654 fuglar af 77 tegundum. Líkt og áður var æðarfugl algengasti fuglinn. Niðurstöður talninga eru birtar á vef stofnunarinnar.
FuglatalningFuglatalning við Kleifarvatn á Reykjanesi. Ljósm. Aldís Erna Páldóttir.
FuglatalningStafnesviti á Reykjanesi. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.
FuglatalningFuglatalning í Hvalfirði. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.

Vöktun grágæsa

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í vöktun grágæsa, sem byggir á áralangri sögu talninga og rannsókna á stofninum. Upphaf verkefnisins má rekja til talninga á vetrarstöðvum grágæsa á Bretlandseyjum sem hófust árið 1960 en eftir 1990 hófust einnig reglulegar talningar hér á landi. Samhliða talningum hefur varpárangur verið metinn með því að greina hlutfall unga í stofninum. Á árunum 1995–2000 fóru fram umfangsmiklar merkingar á grágæsum, þar á meðal á Íslandi, meðal annars til að meta dánartíðni. Frá svipuðum tíma hafa veiðitölur verið skráðar og veiðiafli aldursgreindur. Vöktunin er unnin í samvinnu við British Trust for Ornithology (BTO), Joint Nature Conservation Committee (JNCC), á Englandi, NatureScot í Skotlandi, Náttúruverndarstofnun, Náttúrustofu Austurlands og Verkís.
Frá árinu 2004 hefur verið lagt mat á fjölda grágæsa á Íslandi á sama tíma og talningar fara fram á vetrarstöðvum þeirra á Bretlandseyjum. Matið byggir á talningum bæði úr lofti og af landi, auk gagna frá almenningi. Í nóvember 2025 voru grágæsir taldar í Bretlandi og samhliða var fjöldi þeirra metinn hér á landi (18.272 fuglar). Í Bretlandi fara einnig fram hausttalningar á heiðagæsum og í tengslum við þær er upplýsingum safnað hér á landi í október (1.654 fuglar). Samantekt talninga fyrir árin 2024 og 2025 er enn í vinnslu hjá BTO.
Sumarið 2021 hófst samstarf Náttúrufræðistofnunar, Náttúrustofu Austurlands og Verkís við NatureScot um að setja GPS-senda á íslenskar grágæsir. Sumarið 2025 fengu 35 fuglar GPS-senda og 31 grágæs var litmerkt. Í september 2025 var farið í samhæft talningaátak um land allt þar sem staðsetning hópa var skráð nákvæmlega í tíma og rúmi. Gögn úr septembertalningunni, ásamt staðsetningagögnum úr GPS-sendum verða notuð til að meta stofnstærð íslenska breska grágæsastofnsins. Kosturinn við slíka nálgun er að í september hafa fuglarnir tekið að hópa sig, en far til Bretlandseyja er ekki hafið og því ekki komin blöndun við staðbundna stofna þar. Gögn úr GPS-sendum sýna jafnframt hversu stór hluti stofnsins er innan talningasvæða og gera þannig kleift að meta skekkju í talningunum.
merkingar á grágæsaGrágæsamerkingar á Breiðafirði. Ljósm. Sigrún Sigurðardóttir.
merking á grágæsaGrágæsamerkingar við Rangá. Ljósm. Sigrún Sigurðardóttir.
merkingar á grágæsaGrágæsamerkingar við Gunnarsstaði í Þistilfirði. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.

Vöktun margæsa

Margæsir hafa viðdvöl á Íslandi vor og haust á ferðum sínum milli varpstöðva í austurhluta Kanada og vetrarstöðva á Írlandi. Vetrarstofninn hefur verið metinn með árlegum talningum í 65 ár en markmið vöktunarinnar er að meta stærð farstofnsins og varpárangur. Árið 2001 hófust samhliða talningar á Íslandi á haustin til að auka nákvæmni í mati á heildarstærð stofnsins. Talningarnar fara fram í október þegar allt að 70% fuglanna hafa safnast saman í Strangford Lough á austurströnd Norður-Írlands, áður en þeir dreifast suður um austurströnd og yfir á vesturströnd landsins.
Á sama tíma og talning á Írlandi fer fram eru margæsir einnig taldar á vestanverðu Íslandi til að meta hversu stór hluti stofnsins er enn hér á landi á talningardegi. Að meðaltali eru um 10% stofnsins Íslandi á þessum tíma en hlutfallið sveiflast talsvert, á bilinu 0–29%. Þann 10. október 2025 var flogið yfir helstu hauststaði margæsa við Faxaflóa, þar sem samtals 105 fuglar fundust. Ekki var flogið yfir Breiðafjörð vegna veðurs en miðað við niðurstöður úr Faxaflóa er ekki talið líklegt að stórir hópar hafi dvalið þar. Heildarmat stofnstærðar er enn í vinnslu.
Mynd af margæsum á flugiMargæsir á flugi yfir Blautósi. Ljósm. Guðni Hannesson.
Margæs á Innstavogsnesi.Margæs í friðlandinu á Innstavogsnesi. Ljósm. Guðni Hannesson.

Margæsir á InnstavogsnesiMargæsir í friðlandinu á Innstavogsnesi. Ljósm. Guðni Hannesson.

Vöktun arnarstofnsins

Fylgst hefur verið arnarstofninum á Íslandi í rúma öld en reglubundin vöktun hófst um 1960. Árlega er fylgst með breytingum á stofnstærð, afkomu og útbreiðslu tegundarinnar. Þróun stofnsins er því afar vel þekkt og vart er til sú fuglategund hér á landi sem jafn nákvæmar upplýsingar liggja fyrir um.
Á árinu 2025 urpu að minnsta kosti 60 arnarpör en einungis var hægt að staðfesta að 36 þeirra komu upp ungum. Alls voru 102 óðul heimsótt og 74 þeirra talin setin. Varpárangur var talsvert síðri en árin 2023 og 2024 þegar 43 pör komu upp ungum bæði árin. Alls tókst 36 pörum að koma upp að minnsta kosti 49 ungum og þar af voru 47 merktir í 34 hreiðrum. Fjöldi para er ekki ósvipaður árinu 2022 þegar 58 pör urpu en einungis 27 þeirra komu upp 38 ungum. Það ár telst eitt af lakari varpárum. Þrátt fyrir að fá pör komu upp ungum í ár var ungafjöldinn þokkalegur, einkum vegna þess að hlutfall hreiðra með tveimur ungum var tiltölulega hátt. Stofninn telur áfram um 90 varppör og heildarfjöldi fugla er áætlaður um 350. 
Á árunum 2019–2025 voru settir sendar á 80 arnarunga og eru 43 þeirra enn lifandi og með virka leiðarrita (39 frá fyrri árum og fjórir frá árinu 2025) og virðast þeir allir við góða heilsu. Dánarorsakir fuglanna sem hafa drepist eru af ýmsum toga, meðal annars fuglaflensa (10 staðfest tilfelli), áflug á raflínu, blýeitrun (eftir að hafa étið gæsarhræ) og drukknun.   Gögn sýna að ungir fuglar ferðast víða áður en þeir ná kynþroska við 5–6 ára aldur. Með þessari tækni er nú hægt að kortleggja búsvæðaval arna með miklu meiri nákvæmni en áður. Einstakar staðsetningar voru um 5,2 milljónir talsins í byrjun febrúar 2025.
Vöktunin er unnin í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, Náttúrustofu Norðurlands vestra, Háskóla Íslands og heimamenn.
Mynd sem sýnir fuglafræðinga merkja arnarungaUnnið að arnarmerkingum sumarið 2025. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.
Mynd af hafarnarhreiðriHafarnarungar merktir á hreiðri. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.
Mynd sem sýnir fálkamóður fóðra unga sínaUnnið að arnarmerkingum sumarið 2025. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.

Vöktun fálka

Rannsóknir á stofnvistfræði fálka á Norðausturlandi hafa staðið yfir frá árinu 1981. Meginmarkmið vöktunarinnar er að fylgjast með breytingum á stofni tegundarinnar og tryggja að alltaf séu til upplýsingar um þróun og ástand hans. Samhliða er rannsakað hvernig fálkar bregðast við sveiflum í stofni rjúpunnar, bæði hvað varðar stofnstærð og atferli. Rjúpa hefur verið aðalfæða fálka á rannsóknasvæðinu allan tímann og tengsl tegundanna eru mjög sterk. Sem hluta af þessu langtímaverkefni er unnið að þróun stofnlíkans fyrir fálka.
Sumarið 2025 var gagna aflað um stærð varpstofns fálka á rannsóknasvæðinu, tímasetningu varps, viðkomu og fæðu. Alls eru þekkt 88 fálkaóðul á svæðinu og voru þau öll heimsótt til að meta ábúð. Tuttugu og sjö (31%) voru í ábúð og var varp staðfest á 10 þeirra (37% óðala í ábúð). Samtals komust upp 34 ungar. Meðalfjöldi unga á varppar var 3,4 og hófst varp á tímabilinu 28. mars til 8. apríl.
Frjósemi fálka var með allra besta móti ef eingöngu er horft til þeirra para sem komu upp ungum, og hefur meðalfjöldi unga á varppar aldrei verið hærri. Önnur mynd fæst þó þegar frjósemi er metin sem meðalfjöldi unga á óðalspar; þar var árið 2025 í meðallagi miðað við önnur ár. Þetta lága gildi helgast af því hversu stór hluti paranna reyndi ekki varp.
Fæðuleifum var safnað við sjö hreiður og samtals fundust þar 675 fuglar sem tilheyrðu 18 tegundum. Mikilvægasta bráðin var rjúpa (80% miðað við fjölda) en næst  komu rauðhöfði (9%) og heiðagæs (4%). Aðrar tegundir voru mun sjaldgæfari (1% eða minna).
Talningar sýna að fálkum hefur fækkað samfellt frá 2019 og varpstofninn vorið 2025 var sá minnsti frá upphafi rannsókna. Fækkunin kemur á óvart því viðkoma fálka var mjög góð árin 2018 og 2019, en þeir árgangar hafa ekki skilað sér inn í varpstofninn. Líklega endurspeglar fækkunin há afföll geldfugla og þar af leiðandi lélega nýliðun, auk þess sem aukin afföll óðalsfálka kunna einnig að hafa áhrif. Líklegasta skýringin á stofnhruni fálka eru sýkingar af völdum fuglainflúensu. Frá og með árinu 2021 hafa 59% þeirra fálka sem fundist hafa dauðir eða deyjandi greinst með slíka sýkingu.  
Mynd af fálkaFullorðinn fálki, kvenfugl, á flugi nærri hreiðri. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.

Erfðafræði fálka

Náttúrufræðistofnun vinnur að erfðarannsóknum á  íslenska fálkans með það að markmiði að auka skilning á erfðabreytileika, stofngerð og þróun tegundarinnar. Verkefnið hófst árið 2015 og er unnið í samstarfi við innlenda og erlenda sérfræðinga.
Rannsóknirnar byggja á gögnum og vefjasýnum sem safnað hefur verið á undanförnum áratugum. Efniviðurinn er nýttur til arfgerðagreininga og annarra erfðafræðilegra rannsókna með það að markmiði að varpa ljósi á lýðfræði stofnsins og tengsl við ónæmis- og vistfræðilega þætti.

Vöktun rjúpnastofnsins

Rjúpnastofninn á Íslandi einkennist af reglubundnum sveiflum í stofnstærð á milli ára. Náttúrufræðistofnun hefur sinnt vöktun rjúpnastofnsins í áratugi og er gerð árlega með fjórum meginverkefnum: talningum á vorin, aldursgreiningum úr veiði og varpstofni, rannsóknum á holdafari rjúpna og afráni fálka. Á sama tíma sér Náttúruverndarstofnun um skráningu veiði og sóknar.
Árið 2024 var í fyrsta skipti notast við nýtt samþætt stofnlíkan (e. integrated populations model) fyrir rjúpu á Íslandi. Líkanið var þróað í samstarfi við erlendan sérfræðing og er hluti af stjórnunar- og verndaráætlun fyrir tegundina. Það nýtir  gögn úr rjúpnarannsóknum og veiðikortakerfinu frá árinu 2005 til dagsins í dag og metur stofnstærð, viðkomu og afföll í hverjum landshluta. Líkanið hefur verið notað sem vísindalegur grunnur veiðiráðgjafar síðustu tvö ár. Á hverju sumri er nýjustu gögnum bætt við og líkanið keyrt á ný til að ákvarða veiðitímabil komandi hausts. Veiðistjórnunin byggist áfram á fjölda veiðidaga, en nú er dagafjöldi ákveðinn fyrir hvert veiðisvæði fyrir sig í stað landsins alls, og getur því verið breytilegur milli svæða.
Rjúpnatalningar vorið 2025 sýndu mismunandi þróun eftir landshlutum. Á Vestfjörðum og Norðvesturlandi var fjöldi svipaður og undanfarin ár en á Austurlandi varð fækkun frá 2024. Á Suðurlandi var aukning og er stofninn þar nálægt meðaltali síðustu ára. Á Vesturlandi og Norðausturlandi var talsverð aukning og á sumum sniðum, svo sem á Mýrum og í Bakkafirði,  var fjöldi rjúpna sá mesti sem mælst hefur frá upphafi talninga. 
Aldursgreiningar eru framkvæmdar tvisvar sinnum á ári, að vori og á veiðitíma, þar sem greint er á milli fugla á fyrsta ári og eldri fugla með hliðsjón af lit flugfjaðra. Aldursgreiningar úr varpstofni voru gerðar í öllum landshlutum. Sýna var aflað með því að ljósmynda fugla á flugi að vorlagi og voru 1.255 fuglar aldursgreindir árið 2025. Hlutfall ungfugla var lægst á Vesturlandi (35%) og hæst á Austurlandi (56%) en fyrir allt landið var hlutfallið 46%. Aldursgreiningar úr veiðistofni byggja á sýnum sem veiðimenn senda inn og ná til allra landshluta. Samtals voru 3.115 fuglar greindir frá veiðitíma 2024, en sýni bárust frá október 2024 fram á vor 2025. Hlutfall unga var 68% á landsvísu, sem er eilítil aukning frá 2023. Hlutfallið var lægst á Suðurlandi (61%) en hæst á Norðausturlandi (73%).
Holdafar rjúpna á Norðausturlandi hefur verið metið frá árinu 2006. Árið 2025 var holdafar almennt gott og yfir meðaltali áranna 2006–2024. Munur var á milli aldurs og kyns; ungir fuglar, einkum kvenfuglar, voru að jafnaði í verra ástandi en fullorðnir fuglar.
Til að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á stofnbreytingar rjúpu hafa fræðimenn við Náttúrufræðistofnun, í samstarfi við vísindamenn víðar að, rannsakað tengsl hennar við fálka og heilbrigði stofnsins. Þar sem fálki er sérhæfður ránfugl og rjúpa aðalfæða hans er líf tegundanna tveggja samofið. Á Norðausturlandi eru árlega metin stofnstærð, viðkoma og fæða fálka. Niðurstöður ársins 2025 sýna áframhaldandi fækkun fálka frá 2019 og hefur ábúð á fálkaóðulum minnkað um 51% á því tímabili. Talið er að fuglaflensa sé helsta skýring þessarar þróunar og hefur hún leitt til þess að fálkinn er nú flokkaður sem tegund í hættu á válista fugla.
Samstarfsaðilar við vöktun rjúpunnar eru umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruverndarstofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrustofur Suðvesturlands, Vesturlands, Norðausturlands og Austurlands, SKOTVÍS, Fuglavernd og áhugafólk um líffræði rjúpunnar.
Mynd sem sýnir rjúpu á flugiRjúpnakarri á flugi. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.
Mynd af rjúpumRjúpur. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.
Mynd af rjúpumRjúpupar á steini. Ljósm. Ólafur Karl Nielsen.

Visterfðamengjafræði rjúpunnar

Náttúrufræðistofnun vinnur að því að skilgreina og rannsaka erfðamengi rjúpunnar (Lagopus muta) með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á líffræði, vistfræði og þróunarsögu tegundarinnar. Um er að ræða langtímaverkefni sem hófst árið 2020 og er unnið í samstarfi við sérfræðinga á Íslandi, í Bandaríkjunum og Svíþjóð.
Leitast er við að kanna tengsl erfðaupplags og örverusamfélaga við stofnbreytingar í rjúpu með því að nýta gagnasöfn og vefjasýni sem safnað var á árunum 2006–2018 í verkefninu Heilbrigði rjúpunnar. Efniviðurinn nýtist til að rannsaka heilraðgreind erfðamengi fugla, og litningsenda (e. telomeres). Með þessari breiðu vísindalegu nálgun er ætlunin að greina erfðabreytileika og skilgreina svæði eða gen í erfðamenginu sem kunna að tengjast náttúruvali, stofnsveiflum og aðlögun vegna ólífræns og lífræns áreitis. Slíkar upplýsingar geta varpað ljósi á mögulega framtíðarstöðu rjúpunnar á Íslandi á tímum loftslagsbreytinga.

Vöktun skarfastofna

Vöktun á varpstofnum dílaskarfs og toppskarfs hefur farið fram hér á landi í um hálfa öld. Vöktunin byggist á ljósmyndun þekktra skarfabyggða á vestanverðu landinu sem framkvæmd er úr flugvél og talningu hreiðra af myndunum. Varpstofnar beggja tegunda eru metnir árlega og er verkefnið styrkt með fé sem fæst af sölu veiðikorta.
Í maí á hverju ári eru nær öll þekkt skarfavörp á Íslandi ljósmynduð úr flugvél og hreiður talin á myndunum. Með þessum hætti fást sambærileg gögn milli ára sem gera kleift að fylgjast með breytingum á stærð og þróun skarfastofna til lengri tíma.
Illviðri seint í maí 2023 höfðu veruleg áhrif á varp beggja tegunda og leiddu til mikillar fækkunar í hreiðrafjölda það ár. Þrátt fyrir það bar lítið á dauðum skörfum í kjölfar óveðursins, sem gaf til kynna að stofnarnir gætu náð sér á ný. Niðurstöður vöktunar undanfarinna ára styðja þá ályktun. Árið 2025 voru skráð 4.727 dílaskarfshreiður og 6.107 toppskarfshreiður, sem felur í sér áframhaldandi fjölgun frá árinu 2024 og bendir til þess að varpstofnar beggja tegunda séu að jafna sig eftir lægðina árið 2023.
mynd af skarfiDílaskarfur í Ingólfsfirði á Ströndum. Ljóm. Guðni Hannesson.
mynd af skarfiDílaskarfur með marhnút. Ljósm. Erling Ólafsson.
mynd af dílaskörfumDílaskarfar á Sólmundarhöfða á Akranesi. Ljósm. Guðni Hannesson.

Fjöldi dílaskarfs- og toppskarfshreiðra
á tímabilinu 2016–2025

Vöktun súlu

Varpstofn súlu hefur verið metinn með talningum á um það bil fimm ára fresti frá 1985. Náttúrufræðistofnun Íslands tók við verkefninu frá Háskóla Íslands árið 2019. Markmið vöktunarinnar er fyrst og fremst að fylgjast með breytingum á stofnstærð en jafnframt að varpa ljósi á orsakir þeirra og tengsl við umhverfisþætti. Teknar eru myndir úr flugvél af öllum þekktum súlubyggðum á Íslandi og hreiður talin af myndunum. Árið 2025 fór fram heildartalning en sú síðasta var árið 2019 þegar stofninn hafði vaxið jafnt og þétt frá upphafi talninga.
Fuglaflensa greindist í súlustofninum um miðjan apríl 2022. Í kjölfarið voru súluvörp í Eldey og Vestmannaeyjum mynduð í júní 2022 og aftur árið 2023. Þá var einnig flogið yfir súluvörp á norðausturhorni landsins, á Melrakkasléttu og Langanesi. Árið 2025 voru allar súlubyggðir landsins myndaðar. Vegna mikillar þoku við flug yfir Norðausturland var byggðin í Skoruvík mynduð með dróna nokkrum dögum síðar.
Niðurstöður talninga sýna að í Eldey fækkaði varppörum um 33% milli árana 2019 og 2023 og í Vestmannaeyjum um 31% að meðaltali. Þar eru fimm byggðir: Súlnasker, Litli-Geldungur, Stóri-Geldungur, Hellisey og Brandur. Á Norðausturlandi mældust minni breytingar. Þar fækkaði varppörum um 12% í Rauðanúp (úr 949 í 839) og 26% í Skoruvík (úr 888 í 657). Líklegt er að þessa fækkun megi rekja til fuglaflensu. Til að fá betri mynd af afleiðingum flensunnar voru farnar tvær mannaðar ferðir út í Eldey að vetrarlagi árin 2022 og 2024. Árið 2022 sýndu sniðtalningar töluverðan fjölda hræja þar sem dánarorsök var ekki augljós (t.d. fugl flæktur í net) en árið 2024 var fjöldi hræja margfalt minni.
Heildartalning árið 2025 sýnir fjölgun í öllum byggðum frá árinu 2023, á bilinu 2–18%. Í Eldey voru talin 10.272 varppör og í Vestmannaeyjum 11.739 (Súlnasker: 7.280, Litli- og stóri Geldungur: 1.742, Hellisey: 2.241 og Brandur: 476). Á Norðausturlandi voru 929 varppör í Rauðanúp, 667 í Skoruvík og 8.451 í Skrúð. Einungis var talið í Skrúð árin 2019 og 2025 og voru niðurstöður sambærilegar; þar verpa 8.000-8.500 pör. Óvíst er því hvort fuglaflensan hafi haft áhrif á varp þar, eins og mátti sjá í þeim byggðum sem voru myndaðar 2023.
Talningar á súluhreiðrum árin 2022–2025, ásamt mönnuðum athugunum veturinn 2022 og 2024, sýna að fuglaflensan hafði mikil áhrif á fjölda varppara, einkum á suðvesturhluta landsins. Niðurstöður ársins 2025 benda til þess að stofninn sé að rétta úr kútnum og að fjöldi varppara nálgist nú um 80% af því sem hann var árið 2019.

Farhættir skrofu

Skrofa er farfugl sem verpir á Íslandi, þó eingöngu í Ystakletti á Heimaey og á nokkrum úteyjum Vestmannaeyja. Frá árinu 2006 hafa farhættir skrofu í Ystakletti verið rannsakaðir með dægurritum sem skrá meðal annars upplýsingar um farleiðir og vetrarstöðvar fuglanna. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskólann í Barcelona og Náttúrustofu Norðausturlands.
Skrofur sem fylgst hefur verið með halda yfirleitt af stað frá Vestmannaeyjum um miðjan september og tekur ferðalagið á vetrarstöðvar í Suður-Atlantshafi um 33 daga. Farleiðin liggur meðfram ströndum Vestur-Evrópu og Norður-Afríku áður en fuglarnir halda yfir Atlantshafið í átt að Brasilíu og síðan suður með ströndinni til Argentínu, þar sem þeir dvelja fram í miðjan mars. Á bakaleiðinni fylgja þeir strönd Suður-Ameríku norður á bóginn og fljúga síðan frá Norðaustur-Brasilíu yfir Atlantshafið, langleiðina að Nýfundnalandi, og þaðan til Vestmannaeyja. Fuglarnir koma aftur á varpstöðvarnar í Ystakletti í apríl.
Sumarið 2025 voru dægurritar endurnýjaðir á átta af tíu skrofum sem höfðu fengið slíkan búnað árið 2024 og á einum fugli sem hafði fengið hann árið 2023 og safnað gögnum í tvö ár. Þá fékk ein skrofa dægurrita í fyrsta sinn. Frá upphafi verkefnisins hafa alls 245 dægurritar verið settir út og 194 náðst aftur. Alls voru fjórtán skrofur merktar, þar af níu ungar í hreiðri og fimm fullorðnir varpfuglar, og 31 merkt skrofa endurheimtist. Í verkefninu hafa 166 varpfuglar og 96 ungar verið merktir og hafa 111 varpfuglar náðst aftur að minnsta kosti einu sinni. Jafnframt hafa fimm ungar endurheimst, þar af tveir eftir að þeir hófu sjálfir varp. Þrjár af þeim skrofum sem fengu dægurrita árið 2025 voru upphaflega merktar árið 2006, á fyrsta ári verkefnisins.
Fyrirhugað er að kynna niðurstöður úr verkefninu á alþjóðlegri sjófuglaráðstefnu (WSC4) í Hobart í september. Niðurstöður benda til þess að frá upphafi verkefnisins hafi fartími fuglanna frá vetrarstöðvunum við austurströnd Argentínu til Íslands styst að meðaltali um 11 daga, auk þess sem vetrarstöðvarnar hafa færst norðar.
SkrofurannsóknirUnnið að Skrofurannsóknum í Ystaketti í Vestmannaeyjum. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.
SkrofurannsóknirSkrofa verpir aðeins einu eggi. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.
SkrofurannsóknirVarpfugl með gagnarita. Ljósm. Aldís Erna Pálsdóttir.

Vöktun hrafna

Vöktun hrafnsóðala á völdum svæðum hefur staðið yfir frá árinu 1981. Markmiðið er að kanna ábúð óðala, skrá útbreiðslu varps, meta varpárangur og fylgjast með breytingum á stofninum. Þar sem hrafnar nýta gjarnan sömu varpstaði ár eftir ár veitir ábúð óðala mikilvægar upplýsingar um þróun varpstofnsins. Vöktunin nær til svæða í Þingeyjarsýslu frá 1981, á Austurlandi á tímabilinu 1981–1987, Suðvesturlandi á árunum 1981–1987 og aftur frá 2009, auk Vesturlands þar sem hún hófst 2009. Í tengslum við fálkatalningar í Þingeyjarsýslu hefur jafnframt verið leitað markvisst að hrafnshreiðrum, auk þess sem heimildum um hrafnavarp er safnað víða um land.
Á árinu 2025 voru heimsótt um 70 hrafnsóðul í Þingeyjarsýslu og um 30 á Vesturlandi. Vöktun  á Suðvesturlandi var hins vegar með breyttu sniði frá fyrri árum og voru einungis fáir staðir heimsóttir af starfsfólki Náttúrufræðistofnunar. Í staðinn var leitast við að fá almenning til þátttöku með færslu á samfélagsmiðlum, þar sem fólk var hvatt til að senda upplýsingar um þekkta laupa. Þessi nálgun skilaði ágætum árangri og nokkrir nýir laupar bættust við skráninguna, einkum á Suðurlandi. Heildarfjöldi kannaðra óðala á Suðvesturlandi er þó ekki sambærilegur við undanfarin ár og verður aðferðin útfærð frekar á árinu 2026.
Hrafnar á flugi.Hrafnar á flugi. Ljósm. Guðni Hannesson.
LaupurGamall laupur í klettabelti á Mýrunum. Ljósm. Svenja N.V. Auhage.
LaupurLaupur og hrafnafjölskylda undir Melabökkum. Ljósm. Svenja N.V. Auhage.

Vöktun mófugla

Náttúrufræðistofnun hefur um í um tvo áratugi vaktað mófugla á tveimur svæðum, á Mýrum í Borgarbyggð frá 2006 og við neðanvert Markarfljót frá 2007. Markmið verkefnisins er að meta varpþéttleika og fylgjast með breytingum á fjölda fugla yfir tíma. Gögnin sem safnast hafa í vöktuninni mynda lengstu samfelldu talningaraðir sinnar tegundar hér á landi. Til mófugla teljast vaðfuglar, nokkrar spörfuglategundir, rjúpa og kjói en auk þeirra eru aðrar tegundir sem sjást við athuganir einnig skráðar.
Sumarið 2025 fór fram nítjánda talningin á Mýrum og sú átjánda við Markarfljót og gengu þær vel. Talið var á 201 punkti á Mýrum og 55 punktum við Markarfljót.
Meðalfjöldi sex algengustu tegunda vaðfugla (heiðlóu, hrossagauks, jaðrakans, lóuþræls, spóa og stelks) eftir svæðum og árum er birtur á vef Náttúrufræðistofnunar. Á Mýrum hefur þróunin verið neikvæð hjá nokkrum tegundum, einkum hrossagauk og heiðlóu. Aftur á móti hefur jaðrakan fjölgað verulega frá upphafi talninga og einnig hefur stelk fjölgað.
Fjöldi fugla við Markarfljót hefur verið breytilegur og hjá flestum tegundum ekki komið fram skýr leitni. Þó virðist heiðlóu hafa fækkað lítillega en hrossagauk hefur hins vegar fjölgað nokkuð. Hjá sumum tegundum má greina niðursveiflu á gosárunum 2010 og 2011 þegar gaus í Eyjafjallajökli og síðar Grímsvötnum.
Gögn úr talningunum voru nú í fyrsta sinn nýtt til  að meta stofnþróun vaðfugla fyrir uppfærðan válista fugla 2025. Við slíkt mat er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsambandsins (IUCN), þar sem breytingar á stofnstærð eru metnar yfir tiltekið tímabil sem tekur mið af kynslóðalengd, jafnan þrjár kynslóðir. Vegna langlífis flestra vaðfugla þurfa talningaraðir því að ná yfir nokkuð langt tímabil til að hægt sé að draga af þeim áreiðanlegar ályktanir um stofnþróun.
Við uppfærsluna urðu umtalsverðar breytingar á stöðu vaðfugla á válista. Fjórar tegundir sem áður töldust ekki í hættu eru nú flokkaðar „í nokkurri hættu” (VU): lóuþræll, stelkur, heiðlóa og spói. Talningar Náttúrufræðistofnunar, ásamt gögnum annarra rannsóknastofnana, benda til að þessum tegundum hafi fækkað víða um land á undanförnum árum, sem vekur áhyggjur. 
HeiðlóaHeiðlóa. Ljósm. Erling Ólafsson.
HrossagaukurHrossagaukur. Ljósm. Erling Ólafsson.
StelkurStelkur. Ljósm. Erling Ólafsson.

Vöktun refastofnsins 

Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með vöktun íslenska refastofnsins, þar sem fylgst er með stofnbreytingum, viðkomu og vanhöldum. Verkefnið er einstakt samstarf milli veiðimanna og vísindamanna, þar sem veiðimenn um mestallt land leggja til gögn með því að senda stofnuninni hræ af felldum dýrum. Hræin eru nýtt til ýmissa mælinga, þar á meðal aldursgreininga, sem mynda grunn að líftöflum. Út frá þeim er lagt mat á hlutfall refa í mismunandi aldursflokkum og félagsgerð stofnsins, svo sem hlutfall grendýra eða hlaupadýra. Þessi gögn, ásamt veiðitölum, eru nýtt til að þróa stofnlíkan sem hingað til hefur verið miðað við lágmarksstærð hauststofns á landsvísu. Í friðlandi Hornstranda er stofnmat byggt á vísitölum um fjölda gota (ábúðaþéttleika) og gotstærð, í samræmi við aðferðir sem notaðar eru á öðrum búsvæðum tegundarinnar við norðurheimskautið.
Árið 2025 voru alls 565 refir krufðir og mældir, þar af 193 í Skagafirði í samstarfi við Náttúrustofu Norðurlands vestra. Við krufningar eru skráðar upplýsingar um líkamsástand, stærð og æxlun, auk þess sem tekin eru sýni til frekari rannsókna og varðveislu í vísindasafni. Unnið var úr sýnum, þar sem meðal annars voru dregnar vígtennur úr 384 refahausum og þær sendar til rannsóknastofu í Bandaríkjunum til aldursgreininga en neðri kjálkar voru jafnframt hreinsaðir og þurrkaðir til mælinga og varðveislu. Aldur refa er metinn með greiningu á vígtönnum, þar sem vetrarlínur í tannbeini gefa til kynna aldur dýranna og nýtist hlutfall holrýmis í rótum tannanna sérstaklega til að meta aldur ungra dýra með meiri nákvæmni en áður var unnt.
Gögn úr mælingum ársins voru skráð í gagnagrunn stofnunarinnar og í árslok var búið að skrá upplýsingar um 13.359 dýr. Enn er eftir að færa inn gögn um rúmlega 200 dýr sem krufin voru árið 2025. Jafnframt var lokið við innslátt handritaðra gagna um hlutfall holrýmis vígtannaróta hjá 5.589 refum, sem byggja á mælingum frá árunum 1979–2010. Þessi gögn nýtast meðal annars við þróun stofnlíkana og mat á dánartíðni refa á fyrsta vetri. Á árinu var einnig unnið að yfirferð og villuprófun gagna, leiðréttingum og viðbót skráninga þar sem upplýsingar vantar, einkum um hnitsetningu staðsetninga veiddra dýra.
Ítarlegri rannsókn á stofngerð, stofnbreytingum og lífvænleika íslenska refsins, sem hófst árið 2023 með styrk frá Rannsóknasjóði Rannís, miðaði vel áfram. Rannsóknarteymið hittist á vikulegum fundum og kom saman á árlegum vinnufundi á Breiðdalsvík í maí, þar sem unnið var með þrjá meginþætti verkefnisins: tölfræði stofnstærðarmats eftir landshlutum, svipgerð refakjálka og erfðamengi refa á þremur landsvæðum. Verkefnið byggir á gagnasöfnum sem innihalda tugþúsundir mæligagna og spanna 40 ár. Gögnin voru villuprófuð og samþætt áður en þau fóru í tölfræðigreiningu í samræmi við rannsóknaspurningar og tilgátur. Þá voru lögð drög að þremur vísindagreinum sem verða sendar til birtingar á árinu 2026, auk þess sem efni var unnið til kynninga á ráðstefnum og fyrir opið fræðsluerindi um verkefnið.
Hluti af verkefninu var að heilraðgreina erfðamengi 62 refa á þremur landsvæðum, Vestfjörðum, Austurlandi og Suðvesturlandi. Greining, tölfræðileg úrvinnsla og túlkun gagnanna, ásamt svipfarsmælingum refakjálka og rannsóknum á uppruna og sögulegri stofngerð íslenska refsins, er hluti af doktorsverkefni Önnu Báru Másdóttur í líftölfræði við Háskóla Íslands. Niðurstöður benda til þess að genaflæði milli landshluta sé takmarkað og að Vestfirðir skeri sig sérstaklega úr vegna einangrunar. Einnig benda gögn til þess að refir hafi numið hér land í lok síðustu ísaldar og að stofninn hafi gengið í gegnum miklar sveiflur á síðustu 250 árum, mögulega í tengslum við eldgos og kuldaskeið. Niðurstöður voru kynntar á veggspjaldi á ráðstefnu breska vistfræðifélagsins í Edinborg í desember og vísindagrein um efnið verður send til birtingar á árinu 2026.
Jafnframt var unnið að þróun nýs stofnlíkans sem metur stofnstærð eftir landshlutum í stað þess að líta eingöngu til heildarstofnsins. Á árinu 2025 var líkanið prófað með og án raunverulegra gagna til að meta gildi mælibreyta. Fyrstu niðurstöður benda til svæðisbundinna sveiflna í stofninum, þar sem breytingar eru meiri vestanlands en meiri stöðugleiki annars staðar á landinu. Niðurstöður voru kynntar á veggspjaldi á alþjóðlegri ráðstefnu um heimskautarefinn í Churchill í Kanada í september og vísindagrein um uppbyggingu líkansins verður send til birtingar á árinu 2026.
Á árinu fékkst styrkur frá Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar og Félögum ehf. í Súðavík til kaupa á átta hálsböndum með senditækjum sem gera kleift að fylgjast með ferðum refa. Undirbúningur fyrir merkingar hófst með uppsetningu gildra í Þjóðgarðinum á Þingvöllum til að venja refi við þær og er stefnt að því að hefja notkun tækjanna árið 2026.
Þó íslenski refastofninn virðist stór og heilbrigður hefur hann mögulega takmarkaðar varnir gegn utanaðkomandi ógnum. Á árinu greindust tilfelli af fuglaflensu af afbrigðinu H5N5 í refum á nokkrum stöðum á landinu. Í öllum tilfellum urðu refirnir veikir en dánartíðni af þessari skæðu flensu meðal refa er annars óþekkt. Einnig fannst hundalús í villtum ref á Norðvesturlandi. Lýs þessar hafa fundist í vaxandi mæli í feldi heimskautarefa í Kanada og á Svalbarða og hafa þær neikvæð áhrif á gæði feldarins.
Dagana 13.–23. mars 2025 stóð yfir vettvangsferð á Hornströndum þar sem fylgst var með lífríki svæðisins undir lok vetrar. Með í för var kvikmyndateymi frá Humblebee Productions sem vann að heimildaþætti um lífshætti refa í Hornvík, sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Sky í desember 2025. Svæðið var aftur heimsótt  dagana 23. júní til 12. júlí sem hluti af verkefninu „Vöktun náttúruverndarsvæða“. Fyrri vikuna var metin ábúð og gotstærð refa í austanverðri Hornvík og allt suður til Hornbjargsvita, ásamt því að fylgjast með atferli refa og mannfólks við greni í Hornbjargi. Seinni vikan var notuð til að kanna fjölda gota og gotstærð á svæðinu frá Álfsfelli í Hlöðuvík í vestri til Hafnar í Hornvík. Á svæðinu er 41 þekkt greni á 20 óðulum og reyndust 12 þeirra í ábúð sumarið 2025. Meðalfjöldi yrðlinga var 4,2 (2–5 í goti), sem telst í lægri kantinum miðað við fyrri ár en ábúðarþéttleiki var sambærilegur við undanfarin fimm ár.
Í apríl birtist grein í tímaritinu Wildlife Biology  um áhrif ferðamanna á heimsóknir refa á greni á Hornströndum á meðan þeir sinntu afkvæmum sínum. Í nóvember birtist grein í tímaritinu Molecular Ecology um möguleg áhrif loðdýraræktar á erfðamengi villtra heimskautarefa.  
Mynd af ref á HornströndumMórauður refur að sumarlagi. Enn eru leyfar af vetrarfeldi á skotti og hálsi en löngu vindhárin hafa upplitast af sólinni. Ljósm. Ester Rut Unnsteinsdóttir.
Mynd af ref á HornströndumMórauð grenlæða með þrjá mórauða yrðlinga hjá rekaviðarstafla í fjöru. Yrðlingarnir eru um það bil sjö vikna gamlir og hættir á spena en farnir að elta foreldra sína nokkuð langt frá greninu. Ljósm. Ester Rut Unnsteinsdóttir.
Mynd af ref á Hornströndum sem horfir beint í myndavélinaMórauður grensteggur á óðali sínu í byrjun júlí. Enn eru leyfar af vetrarfeldi á skotti dýrsins. Hvít hár í andliti segja ekkert til um aldur dýrsins og eru ekki óalgeng meðal mórauðra refa. Ljósm. Ester Rut Unnsteinsdóttir.