Framtíð nýrrar Náttúrufræðistofnunar felst í þverfaglegri þekkingu á íslenskri náttúru
Árið 2025 einkenndist af því að ný Náttúrufræðistofnun var að slíta barnsskónum eftir sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn. Unnið var að samræmingu ferla, reglna, kerfa og menningar hinnar nýju stofnunar, enda er að mörgu að huga þegar stofnanir eru sameinaðar. Sameining stofnana á sér ekki stað á einum degi eða frá og með samþykkt á Alþingi. Sameiningarferlið sjálft, þ.e. að samræma kerfi og ferla, tekur hið minnsta tvö ár, en gera má ráð fyrir að innleiðing sameiningarinnar með tilliti til stofnanamenningar og nýrrar framtíðarsýnar taki mun lengri tíma. Á sama tíma og unnið hefur verið að sameiningu hefur ný stofnun sinnt hefðbundnum verkefnum sínum, þar sem ekki er gert ráð fyrir að við sameiningu dragi úr afköstum eða getu, svo sem til að sinna þjónustu. Þegar litið er í baksýnisspegilinn, það eina og hálfa ár sem nú er liðið frá sameiningu, verður ekki annað sagt en að starfsfólk Náttúrufræðistofnunar hafi staðið sig sérlega vel við að halda starfseminni gangandi hnökralaust.
Framtíðarsýn
Sameiningin hefur einnig dregið fram styrkleika nýrrar stofnunar, sem felst í þeirri umfangsmiklu þekkingu sem hún býr yfir. Í fyrstu kann að vera erfitt að sjá fyrir sér hvaða samlegð er á milli landmælinga í landshnitakerfi og rannsókna á grænþörungum, eða hvort örnefnaskráning og vöktun refagrena eigi sér sameiginlegan flöt. Þegar betur er að gáð kemur þó í ljós að þverfagleg sýn á rannsóknir og vöktun gefur oft svör við rannsóknarspurningum. Styrkleiki stofnunarinnar felst í þverfaglegri þekkingu og framtíðartækifæri hennar liggja í nýtingu þess styrkleika, ásamt miðlun og samvinnu.
Til að stýra stofnuninni markvisst til framtíðar vann starfsfólk í sameiningu að greiningu á styrkleikum og veikleikum stofnunarinnar og mótun framtíðarsýnar. Ný framtíðarsýn Náttúrufræðistofnunar er skýr og einbeitt í þá átt að stofnunin standi undir nafni þegar kemur að þekkingu á íslenskri náttúru.
„Náttúrufræðistofnun er í fremstu röð sem ábyrg vísinda- og fræðastofnun, þar sem vöktun og rannsóknir á náttúru Íslands og áreiðanlegar landupplýsingar skapa grundvöll þekkingar í þágu samfélagsins“.
Góður vinnustaður
Nokkar mannabreytingar hafa orðið á síðustu þremur árum hjá stofnuninni og forverum hennar. Þær hafa þó fyrst og fremst verið vegna aldurs og starfsmannavelta bendir til þess að starfsfólk haldi tryggð við stofnunina, sem er mikilvægur hluti af þekkingabrunni hennar. Þegar störf hjá Náttúrufræðistofnun hafa verið auglýst hefur stofnuninni borist fjöldi umsókna frá mjög hæfu fólki, sem undirstrikar styrkleika hennar sem vinnustaðar.
Ný tækifæri koma með nýju starfsfólki, sem færir með sér nýja þekkingu, aðferðafræði og tækni. Þó er að mörgu að hyggja og mikilvægt að huga að miðlun þekkingar milli kynslóða. Slíkt getur reynst áskorun þegar fjármagn er af skornum skammti. Náttúrufræðistofnun hefur í nokkrum tilvikum haft tækifæri til að láta störf skarast og hefur það reynst afar vel. Æskilegt væri að slík skörun væri hluti af skipulagi ríkisins til að sporna gegn þekkingartapi við mannaskipti.
Styrkleiki Náttúrufræðistofnunar felst í víðtækum verkefnum hennar, sem eins og fyrr sagði, veita stofnuninni tækifæri til að nálgast viðfangsefni með þverfaglegri sýn. Samvinna milli fagsviða er mikilvæg þegar kemur að ráðgefandi hlutverki stofnunarinnar, svo sem við gerð umsagna um skipulags- og framkvæmdamál. Á árinu skilaði stofnunin um 400 umsögnum, þar sem þverfaglegt umsagnarteymi kom að vinnunni.
Í mörgum tilvikum felst hlutverk stofnunarinnar í að benda á atriði sem hafa þarf í huga við framkvæmdir með tilliti til áhrifa á íslenska náttúru. Mál sem koma til umsagnar eru mörg smá en þau geta einnig verið umfangsmikil og umdeild, þar á meðal mál tengd orkuvinnslu, námuvinnslu, byggingaáformum, skógrækt og annarri landnýtingu. Starfsfólk vinnur að heilindum að því að miðla upplýsingum um áhrif framkvæmda á náttúruna og stöðu einstakra svæða. Hagsmunir geta stangast á og stofnunin hefur ekki verið laus við gagnrýni frá framkvæmdaraðilum vegna umsagna sinna, enda eru oft talverðir fjármunir í húfi. Þrátt fyrir það er mikilvægt að sinna þessu hlutverki af fagmennsku.
Vöktun, kortlagning og rannsóknir eru og verða áfram lykilverkefni stofnunarinnar og miðlun gagna er afar mikilvæg í ákvarðanatöku. Áskoranir felast þó í því að í sumum tilvikum eru grunngögn ekki nægilega góð og aðferðafræði enn í þróun og því ekki hægt að meta áhrif af nýrri tækni og framkvæmdum. Jafnframt gætir stofnunin þess ávallt að miðlun gagna stofni ekki einstökum tegundum í hættu.
Það er skýr sýn stofnunarinnar að hún sé talsmaður íslenskrar náttúru og gæti hagsmuna hennar við framkvæmdir. Landnýting verður ávallt til staðar, enda er hún hluti af því að við getum búið að þessari jörð, en hún þarf að vera í sem mestri sátt við náttúruna. Ísland býr yfir einstökum vistgerðum með mjög hátt verndargildi, svo sem rústamýrarvist, kræklingaleirum og háhitavistgerðum. Hér á landi er einnig viðkvæmur hafarnarstofn, sem telur einungis um 200 kynþroska fugla, og staða íslenska fálkastofnsins er í hættu samkvæmt nýjum válista sem gefinn var út árið 2025.
Standa verður vörð um sérkenni íslenskrar náttúru og hlúa að tegundum og búsvæðum. Þar skiptir miklu að miðla upplýsingum um stöðu mála og benda á það sem ber að varast, en jafnframt að finna leiðir til sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda þar sem það á við. Náttúrufræðistofnun hefur bent á að einstakar framkvæmdir, svo sem vegna sumarhúsa, veglagningar, mastra, skógræktar, námuvinnslu eða vindorku, kunna að virðast smávægilegar hver fyrir sig. Þegar þær eru hins vegar skoðaðar saman geta þær haft veruleg uppsöfnuð áhrif, til dæmis á búsvæði fugla.
Heildaryfirsýn og þekking eru lykilatriði. Þegar kemur að þverfaglegri þekkingu á landi í náttúru Íslands er Náttúrufræðistofnun í fararbroddi og mun halda áfram að eflast með öflugu starfsfólki, í samvinnu við aðrar stofnanir, með öflun nýrra gagna, þróun nýrra aðferða og með því að sækja sér þekkingu erlendis. Ekki síst mun stofnunin styrkja þekkingu á íslenskri náttúru með aukinni miðlun til almennings.