Myndatakan er áætluð yfir þriggja ára tímabil (2024–2026). Veðurskilyrði sumarið 2024 voru óhagstæð og náðist þá aðeins að mynda lítinn hluta landsins. Sumarið 2025 náðist hins vegar að mynda mun stærri svæði og voru nýjar loftmyndir teknar af Austfjörðum, Öræfum, Vopnafjarðarhreppi og hluta Langanesbyggðar, Norðurþings, Múlaþings og Þingeyjarsveitar.
Loftmyndirnar eru birtar í Kortaglugga og jafnframt eru þær aðgengilegar í gegnum vefþjónustur til notkunar í GIS-hugbúnaði. Hægt er að hlaða myndunum niður í 1×1 km reitum og velja hvort þær eru birtar í lit eða sem innrauðar myndir. Áætluð staðsetningarnákvæmni loftmyndanna er 50 cm en reynist í flestum tilvikum meiri. Náttúrufræðistofnun hefur sannreynt nákvæmni gagnanna. Loftmyndirnar voru hnitsettar með fastpunktum sem settir voru upp víðs vegar um landið á árunum 2023–2025. Gert er ráð fyrir áframhaldandi loftmyndatöku sumarið 2026 og að ný gögn verði gerð aðgengileg í Kortaglugga jafnóðum og vinnslu þeirra lýkur.
Auk loftmynda nýtir Náttúrufræðistofnun gervihnattagögn sem meðal annars er aflað í gegnum Copernicus-áætlun Evrópusambandsins.