Fornar strandlínur á Íslandi
Á árunum 2024 og 2025 hefur verið unnið að kortlagningu fornra strandlína á Íslandi, með styrk úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Verkefnið er unnið í samstarfi sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Fornar strandlínur veita mikilvægar upplýsingar um hörfun jökla við lok síðasta jökulskeiðs og við upphaf nútíma, auk breytinga á sjávarstöðu í kjölfarið. Markmið verkefnisins er að kortleggja þessar jarðmyndanir, meta ástand þeirra og verndargildi í samræmi við viðmið laga um náttúruvernd. Með því verður til heildstætt yfirlit um útbreiðslu strandlína og hvaða svæði teljast sérstaklega mikilvæg til verndar fyrir jarðvísindi. Slíkt yfirlit hefur ekki legið fyrir áður.
Á árinu 2025 var áfram unnið að söfnun gagna og kortlagningu fornra strandlína, aðallega á Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum. Á Norðurlandi og Vestfjörðum eru birtar niðurstöður fyrri rannsókna, fáar og dreifðar. Við kortlagningu fjörumarka er að mestu notast við loftmyndir, gervitunglamyndir og ÍslandsDEM-hæðarlíkan til að tryggja sem mesta nákvæmni í staðsetningu og útbreiðslu strandlína. Viðmiðunarkvarði kortlagningarinnar er um 1:25.000.
Farnar voru þrjár vettvangsferðir um sumarið sem reyndust mikilvægar fyrir áframhaldandi úrvinnslu og kortlagningu. Í ferðunum voru strandmyndanir GPS-mældar og ljósmyndaðar, og verndargildi þeirra metið.
Niðurstöður verkefnisins munu nýtast breiðum hópi sérfræðinga, styðja við stjórnsýslu varðandi vernd og nýtingu náttúruauðlinda, nýtast í skipulagsmálum sveitarfélaga og veita framkvæmdaraðilum upplýsingar um efnistökusvæði við gerð matsáætlana. Jafnframt hefur kortlagningin fræðslugildi fyrir almenning og menntakerfið og styrkir umræðu um áhrif loftslagsbreytinga á strandsvæði.
Áætlað er að kortlagningu fornra strandlína ljúki árið 2026. Niðurstöðurnar verða birtar í kortasjá Náttúrufræðistofnunar og landupplýsingagögn gerð aðgengileg þeim sem hafa áhuga á þeim eða not fyrir þau.
Efstu fjörumörk við Kollsá við Hrútafjörð. Ljósm. Lovísa Ásbjörnsdóttir.