Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Landmælingar Náttúrufræðistofnunar eru ein af grunnstoðum rannsókna, vöktunar og innviða samfélagsins og styðja við fjölbreytt verkefni, allt frá skipulags- og framkvæmdaáætlunum til náttúruvöktunar og vísinda­rannsókna. Stofnunin annast rekstur og viðhald grunnmælikerfa landsins, það er landshnitakerfis og lands­hæðar­kerfis, sem byggja á umfangsmiklum mælingum sem safnað hefur verið á löngum tíma og eru uppfærðar árlega með nýjum mælingum.

Jarðstöðvakerfi  (ICECORS)

Mikilvægur hluti landmælinga er rekstur ICECORS-jarðstöðvakerfisins, sem er landshnitakerfi og samanstendur af 33 síritandi jarðstöðvum dreifðum um landið sem nýta gervitunglaleiðsögukerfi til nákvæmra staðsetningar­mælinga. Kerfið er nýtt bæði til nákvæmra landmælinga við framkvæmdir og til vöktunar á náttúru og umhverfi. Á grundvelli kerfisins býður Náttúrufræðistofnun upp á leiðréttingaþjónustu án endurgjalds, sem eykur verulega nákvæmni og skilvirkni í mælingavinnu hjá notendum.
Á árinu 2025 var unnið að endurnýjun á búnaði jarðstöðvanna þannig að nú taka þær flestar við merkjum frá Galileo-staðsetningartunglum Evrópusambandsins.

Landhæðarkerfið

Náttúrufræðistofnun ber ábyrgð á uppbyggingu og viðhaldi sameiginlegs landhæðarkerfis fyrir Ísland. Slíkt kerfi er forsenda áreiðanlegra hæðarmælinga og nýtist víða, meðal annars við hönnun mannvirkja, skipulagsvinnu og rannsóknir á náttúruvá. Á Íslandi er mikilvægi nákvæms hæðarkerfis sérstaklega mikið vegna jarðskorpu­hreyfinga sem fylgja eldvirkni, sem og vegna áhrifa loftslagsbreytinga, svo sem hækkandi sjávarstöðu og bráðnunar jökla. Með reglulegu viðhaldi og vöktun tryggir stofnunin að hæðargögn séu nákvæm, samræmd og aðgengileg. 
Á árinu 2025 var mesta áherslan lögð á endurmælingar á Suðvesturlandi, ekki síst vegna mikilla jarðskorpu­hreyfinga á svæðinu.

Viðmiðunarpunktar

Áfram var unnið að uppsetningu og mælingu viðmiðunarpunkta, sem eru staðsettir um allt land í tengslum við loftmyndatökur og aðra fjarkönnun. Markmið verkefnisins var að setja upp um 600 viðmiðunarpunkta til að bæta nákvæmni loftmynda og annarra fjarkönnunargagna. Í lok árs 2024 höfðu 550 punktar verið mældir. Verkefninu var lokið árið 2025 með uppsetningu og mælingum á þeim punktum sem eftir stóðu.
jarðstöðJarðstöð á Reykhólum. Ljósm. Þórarinn Sigurðsson.
DrónaflugStrandlínumælingar í Arnarfirði. Ljósm. Guðni Hannesson.
viðmiðunarpunktarViðmiðunarpunktur fyrir loftmyndaflug settur niður á Breiðinni á Akranesi. Ljósm. Guðni Hannesson.