Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Þverfagleg verkefni Náttúrufræðistofnunar endurspegla þá breidd sem þarf til að rannsaka náttúru Íslands í heildstæðu samhengi. Þar fléttast saman rannsóknir á lífríki, jarðfræði, vistfræði, landnotkun og umhverfisbreytingum, með það að markmiði að efla þekkingu sem nýtist við náttúruvernd, vöktun og upplýsta stjórnsýslu.

Mývatn  

Náttúrufræðistofnun starfrækir Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn sem sinnir rannsóknum á náttúrufari Mývatns og Laxár ásamt vatnasviðs þeirra. Meginmarkmiðið er að byggja upp vísindalega þekkingu sem nýtist við verndun svæðisins í víðtækum skilningi. Þar undir fellur að afla heildaryfirlits yfir náttúru svæðisins og þróun hennar, greina vistfræðileg tengsl innan vistkerfa Mývatns og Laxár og meta áhrif mannlegra athafna. Fjölmörg rannsóknaverkefni eru í gangi en hér er gerð grein fyrir þeim verkefnum sem voru í forgangi á árinu 2025. 

Hið síkvika vistkerfi Mývatns 

Verkefnið hið síkvika vistkerfi Mývatns beinist að því að skrá og greina breytingar í vistkerfi vatnsins og varpa ljósi á orsakatengsl innan fæðuvefs, næringarefnahringrásar og birtuskilyrða. Samhliða er unnið að þróun reiknilíkana sem lýsa virkni vistkerfisins og viðbrögðum þess við álagi og umhverfisbreytingum.
Rannsóknir hafa sýnt að vistkerfi Mývatns einkennist af áberandi og endurteknum sveiflum sem hafa áhrif á átuskilyrði, fiskstofna og vatnafugla. Sveiflurnar virðast einkum eiga upptök sín í innri ferlum vistkerfisins, einkum tengdum botnlífríki og fæðuvef, fremur en utanaðkomandi umhverfisþáttum. Áhersla verkefnisins er því á að skilja þessa ferla og þá viðkvæmni sem þeir endurspegla.
Hefðbundin vöktun fór fram á árinu. Vortalningar fugla voru framkvæmdar og yfir sumarmánuðina var stöðin mönnuð með reglubundnum hætti. Eftir langvarandi mýleysi síðustu ára bar vatnið loks nafn með rentu á ný. Mikið var af fullorðnum mýflugum á sveimi og lirfufjöldi mældist töluverður á mörgum vöktunarstöðum. Þetta bendir til þess að uppsveifla sé hafin í stofnum mýflugna og að vænta megi góðs árs hvað varðar fjölda mýflugna næsta sumar.
Þessi aukning í fæðuframboði endurspeglaðist í varpárangri fugla, þar sem fjöldi unga á hvern fullorðinn fugl var hár. Hins vegar hefur langvarandi fæðuskortur undanfarinna ára haft áhrif á heildarfjölda fugla, sem er enn almennt lágur við vatnið.
Sumarið markaði jafnframt tímamót í starfsemi rannsóknastöðvarinnar. Forstöðumaður stöðvarinnar, sem hafði gegnt því hlutverki um áratugaskeið og mótað rannsóknir við vatnið, lét af störfum á árinu og við tók nýr starfsmaður. Sumarið einkenndist því af kennslu og almennri yfirferð verkefna. Á sama tíma sást skýr uppsveifla í lífríki vatnsins. Mikið magn mýflugna safnaðist á yfirborði þess og myndaði á köflum fljótandi þyrpingar og upp af þeim stóðu strókar flugna. Þetta endurspeglar hve hratt og afgerandi vistkerfið getur brugðist við breytingum í innri ferlum.
Rannsóknir á MývatniUnnið að vettvangsrannsóknum á mýlögðu Mývatni. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.
Mynd af HúsöndHúsandarsteggur við Laxá. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.
Rannsóknir á MývatniTalningarmenn við fuglatalningar á Álunum. Horft frá Ytri-Hamri til Belgjarfjalls (Vindbelgs). Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.

Blábakteríur og áhrif þeirra í vistkerfi Mývatns  

Markmið verkefnisins er að kortleggja útbreiðslu og virkni blábaktería  (Cyanobacteria) í Mývatni og meta hvaða áhrif þær hafa á vistkerfi vatnsins, meðal annars með tilliti til niturbindingar, birtuskilyrða og eituráhrifa. Rannsóknir hafa sýnt að blábakteríur tengjast bæði skammtímasveiflum og langtímabreytingum í vistkerfi vatnsins.
Blábakteríur hafa margvísleg áhrif á lífríki vatnsins. Þær geta haft afgerandi áhrif á birtuskilyrði og þar með botngróður en eru jafnframt mikilvægur þáttur í næringarefnahringrás þess. Niturbinding þeirra stuðlar að frjósemi vatnsins og þær eru mikilvæg fæða í fæðuvef Mývatns og Laxár. Unnið er út frá þeirri tilgátu að mýlirfur og hornsíli geti, vegna mikils fjölda, haft veruleg áhrif á framboð fosfórs í Mývatni og þar með á umfang og sveiflur blábaktería.
Rannsóknirnar miða að því að varpa ljósi á samspil blábaktería við aðra lykilþætti vistkerfisins, þar á meðal botnlífríki, mýlirfur og hornsíli, og meta hvernig þessir þættir kunna að hafa áhrif á umfang og tíðni blábaktería.
Rannsóknir og vöktun sumarið 2025 leiddu í ljós áberandi blámor, eða svonefnt leirlos, í Mývatni. Mælingar bentu til mikillar framleiðslu blábaktería og minnkaðs gegnsæis vatnsins á köflum.

Fiskstofnar í Mývatnssveit 

Verkefnið fiskistofnar í Mývatnssveit miðar að því að rannsaka útlits- og erfðabreytileika fiska í Mývatni og nágrenni og greina hvernig hann tengist stofnstærð, stofnbreytingum, fæðuframboði og öðrum umhverfisþáttum.
Rannsóknir undanfarinna áratuga sýna að bleikjustofninn í Mývatni hefur minnkað, einkum vegna endurtekinna sveiflna í átuskilyrðum sem hafa haft neikvæð áhrif á tímgun. Vöktun stofnsins hefur farið fram með núverandi sniði frá 1986 og byggir meðal annars á langtímaröð veiðigagna og loftmyndum af riðastöðvum til að meta hrygningarvirkni.
Á árinu lagði Hafrannsóknastofnun net í rannsóknaskyni sem hluta af vöktun fiskistofna í Mývatnssveit. Sýnin hafa enn ekki verið greind en margt bendir til að fjöldi og stærð fiska kunni að vera meiri en undanfarin ár. Bleikjurið voru mynduð í nóvember 2025 en talning þeirra hefur ekki farið fram. Engu að síður benda gögn til þess að fjöldi riða sé með mesta móti frá upphafi talninga.
Hafrannsóknastofnun vann einnig að sýnatöku á svæðinu vegna LIFE Icewater-verkefnisins, sem er hluti af innleiðingu vatnatilskipunar. Starfsfólk nýtti rannsóknaraðstöðu RAMÝ og sótti fiska úr Svartárvatni og Másvatni. Í Svartárvatni reyndist stærð og fjöldi fiska mikill en afli var rýrari í Másvatni. Fiskarnir voru mældir og krufðir og magainnihald skráð til frekari greiningar.
Hornsílastofninn hefur verið stór frá upphafi vöktunar, þó hann einkennist af miklum sveiflum milli ára. Nýlegar rannsóknatilgátur gera ráð fyrir að stór sílastofn geti haft áhrif á fæðuvef Mývatns, bæði með því að hafa áhrif á samsetningu átutegunda og hraða hringrás næringarefna í vatninu. Samhliða þessu er unnið að rannsóknum á erfðabreytileika og þróun smávaxinna og einangraðra bleikjuafbrigða, svo sem gjáarlonta og krúsa, sem hafa mikið verndargildi.
Hornsíli sem veidd voru árið 2025 hafa ekki enn verið talin eða greind en fjöldi þeirra var áberandi meiri en síðustu ár. Unnið er úr niðurstöðum hellavöktunar við Háskólann á Hólum og stefnt er að birtingu þeirra.
Rannsóknir á MývatniStarfsmaður Hafrannsóknarstofnunar kryfur bleikju úr Svartárvatni í kjallara presthússins á Skútustöðum. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.
Rannsóknir á MývatniStarfsfólk Háskólans á Hólum við veiðar, skráningu og merkingu gjáarlontu. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.
Rannsóknir á Mývatni Hornsílagildrur lagðar út í ljósaskiptum. Ljósm. Sölvi Rúnar Vignisson.

Vatnafuglastofnar á Mývatni og Laxá  

Markmið verkefnisins er að fylgjast með stærð, viðkomu og þróun vatnafuglastofna á Mývatni og Laxá og greina hvernig þessir þættir tengjast átuskilyrðum, fæðuframboði og öðrum lykilþáttum vistkerfisins.
Rannsóknir benda til þess að viðkoma margra andategunda ráðist að miklu leyti af átusveiflum í Mývatni. Þróun varpstofna er þó breytileg milli tegunda; sumum hefur fjölgað á undanförnum árum en aðrar sýna merki um viðvarandi viðkomubrest og fækkun. Breytingarnar endurspegla annars vegar skammtímasveiflur í fæðuframboði og hins vegar langtímabreytingar sem líklega tengjast bæði aðstæðum á vetrarstöðvum og staðbundnum umhverfisþáttum. Fjöldi tegunda hér á landi eru mjög háðar lífríki Mývatns og Laxár, þar á meðal tegundir sem í Evrópu verpa eingöngu við Mývatn, svo sem húsönd.
Ástand vatnafugla í Laxá endurspeglar að miklu leyti sveiflur í lífríki Mývatns. Breytingar í stofni bitmýs hafa bein áhrif á fæðuframboð fyrir fugla og fiska í ánni. Áhersla er lögð á að greina orsakir viðkomubrests og fækkunar hjá tilteknum tegundum, þar á meðal straumönd, og skilja samspil fugla, fiska og annarra þátta í vistkerfi Laxár.
Heildarfjöldi vatnafugla í Mývatnssveit árið 2025 var með lægsta móti. Flestum tegundum fækkaði frá síðustu vortalningu, þótt sumar sýni merki um langtímafjölgun, svo sem hávella, hrafnsönd og skúfönd. Aðrar tegundir sýna líka fækkun yfir lengra tímabil, þar á meðal duggönd, húsönd og toppönd. Í hausttalningum kom jafnframt fram að mikið magn mýflugna hafði jákvæð áhrif á varpárangur; hlutfall unga á kollu var hátt sem bendir til góðrar nýliðunar hjá flestum tegundum. 

Vöktun eiturefna í íslenskum vötnum 

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í alþjóðlegu vöktunarverkefni þar sem markmiðið er að fylgjast með uppsöfnun eiturefna í ferskvatni. Verkefnið hófst árið 2020 og er leitt af Háskólanum í Masaryk en 2024 var fyrsta árið sem búnaður var settur út á Íslandi. Notast er við vöktunaraðferð þar sem lípíð-himnur eru settar út í vatn í lengri tíma, yfirleitt í allt að eitt ár í senn, til að safna fitusæknum eiturefnum sem festast á sílíkonfilmum í búnaðinum.
Árið 2025 var gerð tilraun til að setja búnaðinn út í Botnlangalóni, sem er hálendisstöðuvatn. Aðstæður reyndust hins vegar of erfiðar og búnaðurinn tapaðist. Stefnt er að því að endurtaka tilraunina ef nýr búnaður fæst, til dæmis í Mývatni eða öðru nálægu stöðuvatni.

Náttúruminjaskrá  

Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með undirbúningi B- og C-hluta náttúruminjaskrár og ber, samkvæmt lögum um náttúruvernd, ábyrgð á skráningu náttúruminja og mati á verndargildi þeirra. Stofnunin leggur jafnframt fram tillögur til umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra um náttúruminjar sem setja ætti í forgang til friðlýsingar eða friðunar og skrá á framkvæmdaáætlun (B-hluta), auk tillagna fyrir C-hluta sem nær til annarra náttúruminja með hátt verndargildi.
Fyrstu tillögur fyrir B-hluta náttúruminjaskrár voru lagðar fram árið 2018, með áherslu á verndarsvæði fyrir vistgerðir og fugla og sex jarðminjasvæði. Árið 2020 bættust við tillögur um verndun fossa og mikilvægra selasvæða. Árið 2022 var samþykkt að Umhverfisstofnun ynni að kynningu á 15 svæðum í hæsta forgangi og við lok árs 2023 fór fram eða var í undirbúningi sérstakt forsamráð við sveitarfélög og landeigendur, og hafði Náttúrufræðistofnun ráðgjafarhlutverk í því ferli. Tillaga að framkvæmdaáætlun var auglýst vorið 2024 og tóku fulltrúar Náttúrufræðistofnunar þátt í samráðsfundum Umhverfisstofnunar víða um land. Stofnunin á einnig fulltrúa í ráðgjafarnefnd um náttúruminjaskrá sem skilaði áliti sínu á tillögunni til ráðherra.
Fyrsta framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár var samþykkt á Alþingi 10. nóvember 2025 og nær til sex svæða. Þrjú þeirra eru óbreyttar tillögur Náttúrufræðistofnunar: Goðdalur í Bjarnarfirði, Hengladalir í Ölfusi og Lauffellsmýrar í Skaftárhreppi. Eitt svæðið er samsett úr tveimur tillögum, Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettur í Borgarfirði. Tvö eru hlutar af stærri tillögum: Húsey og Eyjasel, sem voru hluti af tillögunni Úthérað og Reykjanes, og Þorlákshver, sem var hluti af tillögunni Laugarvatn–Apavatn–Brúará.
Á árinu 2025 var áfram unnið að skráningu náttúruminja fyrir C-hluta náttúruminjaskrár, með höfuðáherslu á jarðminjar. Unnið hefur verið að þróun aðferðafræði við mat á verndargildi þeirra og hefur hún verið tekin í notkun samhliða skráningu jarðminja og afmörkun jarðminjasvæða. Í lok árs 2025 höfðu 485 jarðminjar verið skráðar í gagnagrunn stofnunarinnar.

Náttúrufar friðlýstra svæða  

Á árinu 2025 vann Náttúrufræðistofnun að náttúrufarslýsingum og mati á verndargildi friðlýstra svæða í tengslum við gerð stjórnar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs á vegum Náttúruverndarstofnunar. Til skoðunar voru náttúruminjar á svæðum sem bættust við þjóðgarðinn 2019, þ.e. Herðubreið, Herðubreiðarlindir og hluti Ódáðahrauns, og stækkun þjóðgarðsins 2021 um hluta þjóðlendu innan Þingeyjarsveitar, austurafréttur Bárðdæla.

Skógvist  

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í rannsóknarverkefninu Skógvist þar sem gerðar eru rannsóknir á lífríki, jarðvegseiginleikum og kolefnishringrás í gróðursettum skógum. Jafnframt eru samskonar mælingar gerðar í náttúrulegum birkiskógum og mólendi til samanburðar. Rannsóknin beinist að fimm hópum lífvera: jarðvegsdýrum, hryggleysingjum á yfirborði, sveppum og fléttum, plöntum og varpfuglum.
Rannsóknarsvæðin eru á Fljótsdalshéraði á Austurlandi og í Skorradal og Norðurárdal á Vesturlandi. Á þessum svæðum voru gerðar mælingar í gróðursettum lerki-, stafafuru- og sitkagreniskógum, sem og í náttúrulegum birkiskógum á mismunandi aldri. Til samanburðar voru gerðar mælingar í beittu mólendi. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um þróun lífríkis með aldri og tegund skóga. Gögnin hafa einnig nýst til að meta áhrif eldgosa, meðal annars Holuhraunsgossins, á jarðveg og gróðurfar.
Mælingar fóru fram á árunum 2002–2006 á Austurlandi og Vesturlandi, árið 2015 á Austurlandi og síðast sumarið 2024 á Vesturlandi þegar reitir í Skorradal voru endurmældir. Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar rannsakaði þar gróður og fugla. Á árinu 2025 voru gögn úr mælingum ársins 2024 færð í gagnagrunna og úrvinnsla hófst. Sú vinna mun halda áfram á árinu 2026 og stefnt er að útgáfu skýrslu um rannsóknirnar á síðari hluta þess árs. Skógvistarverkefnið er unnið að tilstuðlan Lands og skógar og einnig taka Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrustofa Norðurlands vestra og Háskólinn á Akureyri þátt, ásamt Náttúrufræðistofnun.
Greniskógur í SkorradalGreniskógur í Skorradal. Ljósm. Guðni Hannesson.

Stjórn vatnamála  

Innleiðing rammatilskipunar Evrópusambandsins um vatn (Directive 2000/60/EC), svonefnd stjórn vatnamála, hófst hér á landi árið 2011. Umhverfis- og orkustofnun fer með yfirumsjón verkefnisins en Náttúrufræðistofnun, Veðurstofa Íslands og Hafrannsóknastofnun leggja til gögn og sérfræðiþekkingu samkvæmt lögum nr. 36/2011 og reglugerð nr. 935/2011 um stjórn vatnamála.
Tilskipunin nær til grunnvatns og alls yfirborðsvatns, það er straumvatna, stöðuvatna, árósavatns og strandsjávar. Markmiðið er að vernda vatn og vistkerfi þess, tryggja að vatnsgæði haldist góð til framtíðar og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar. Áhersla er lögð á samþætta stjórn þar sem þeir sem nýta vatn eða hafa áhrif á ástand þess koma að vinnunni í samstarfi við stjórnvöld, fagstofnanir, sveitarfélög, heilbrigðisnefndir og aðra hagaðila.
Árið 2024 hlaut Umhverfisstofnun ásamt 22 samstarfsaðilum, þar á meðal Náttúrufræðistofnun, styrk úr LIFE-áætlun Evrópusambandsins til verkefnisins LIFE ICEWATER. Markmið þess er að efla og hraða innleiðingu vatnaáætlunar hér á landi, bæta þekkingu á ástandi, eiginleikum og nýtingu vatns og tryggja samhæfða stjórnsýslu á sviðinu. LIFE ICEWATER er tímabundið verkefni sem stendur yfir árin 2025–2030 og er liður í stjórn vatnamála hér á landi sem er lögbundið langtímaverkefni.
Á árinu 2025 tóku tveir starfsmenn Náttúrufræðistofnunar þátt í vöktun vatnagróðurs í fjórum stöðuvötnum: Másvatni, Svartárvatni, Vatnshlíðarvatni og Ytra-Deildarvatni. Vatnagróður var kannaður á sniðum sem liður í vöktun á ástandi viðmiðunarvatnshlota fyrir stjórn vatnamála og var unnið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun fyrir Umhverfis- og orkustofnun. Úrvinnsla gagna fer fram á árinu 2026.
Á árinu voru jafnframt tekin fyrstu skref í að nýta fjarkönnun við mat á vatnsformfræðilegum gæðaþáttum í strandsjó og árósavatni. Slík aðferðafræði eykur yfirsýn og samræmi í vöktun og gerir kleift að fylgjast markvisst með breytingum. Vöktunarþættir eru skilgreindir í evrópskum stöðlum og skýrsla með tillögum um hvaða þætti er viðeigandi að vakta hérlendis  kemur út fyrri hluta árs 2026. Dæmi um vatnsformfræðilega gæðaþætti eru landfyllingar, mannvirki við strönd, tengsl vatnshlota við sjó og land og áhrif brims.
mynd af lagarfljótiLagarfljót. Ljósm. Guðni Hannesson

Surtsey  

Surtsey reis úr sæ í Surtseyjareldum 1963–1967 og var friðlýst árið 1965 til að tryggja að náttúruleg þróun jarðfræði og lífríkis gæti átt sér stað án áhrifa mannsins. Frá upphafi hefur eyjan verið vettvangur rannsókna og vöktunar og einstök náttúruleg tilraunastofa um myndun lands og landnám lífvera. Langtímarannsóknir í eynni hafa gert kleift að lýsa grunnferlum í jarðfræðilegu og líffræðilegu tilliti, sem er ómetanlegt framlag til vísinda og ein af forsendum þess að eyjan er á heimsminjaskrá UNESCO.  
Náttúrufræðistofnun stundar rannsóknir og annast reglubundna vöktun í Surtsey í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, Landbúnaðarháskóla Íslands, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og fleiri aðila. Árlega eru farnir rannsóknaleiðangrar í samvinnu við Surtseyjarfélagið og Náttúruverndarstofnun þar sem fylgst er með framvindu gróðurs, landnámi lífvera, jarðvegsmyndun, smádýrum og fuglum, auk jarðfræðilegra breytinga annað hvert ár.
Sumarið 2025 dvöldu líffræðingar í eynni 12.–15. júlí og jarðfræðingar 15.–18. júlí. Í maí var jafnframt farinn leiðangur til viðhalds rannsóknaaðstöðu og hreinsunar fjara og var sá tími einnig nýttur til gagnaöflunar.
Alls fundust 59 tegundir æðplantna í eynni og bættist engin ný við fjórða árið í röð. Eftir hraða fjölgun fram til 2015 hefur dregið úr landnámi nýrra tegunda og tegundafjöldi haldist nokkuð stöðugur. Eldri landnemar fundust þó á nýjum stöðum sem bendir til áframhaldandi breytinga á útbreiðslu þrátt fyrir hægara landnám nýrra tegunda. Sjá grafið í exel.grafik_baggrund.pngLandnám æðplantna í Surtsey 1965–2025. Vöktun æðplantna í eynni spannar nú sextíu ár frá því fyrsta æðplantan nam land og sýnir þróun landnáms og breytingar á tegundafjölda frá upphafi.
Tegundir sem hafa horfið úr eynni undanfarin ár eru dæmi um tegundir sem náðu ekki að viðhalda sér til lengri tíma. Á næstu árum og áratugum má gera ráð fyrir áframhaldandi breytingum á tegundasamsetningu vegna samkeppni. Stinnastör, sem fannst fyrst árið 2015, hefur breiðst nokkuð út frá upphaflegum fundarstað en virðist nú eiga undir högg að sækja. Haldi þróunin áfram er líklegt að hún verði undir í samkeppninni við grastegundir í mikilli sókn í jaðri máfavarpsins.
Krækilyng, sem fannst fyrst árið 1993, hefur breiðst verulega út á sunnanverðri eynni og eru stærstu plönturnar orðnar yfir þrír metrar í þvermál. Sumarið 2025 hófst markviss kortlagning á útbreiðslu þess til að varpa ljósi á dreifingarleiðir fræja til eyjarinnar.
Smádýrarannsóknir fóru fram með hefðbundnum hætti; fallgildrur voru lagðar í gróðurmælireiti og tjaldgildra í máfavarpið. Fjórir skógarmítlar fundust í gróðri í máfavarpinu sem líklega hafa borist með spörfuglum sem verpa á eynni. Óvenju mikið var um blaðlús og blómsveifu. Folafluga fannst í annað sinn á eynni og átta þistilfiðrildi sáust nærast á melablómi og blóðbergi. Þá fundust ýmsar aðrar tegundir í talsverðu magni, þar á meðal túnfeti, grasvefari, reyrslæða, engjatíta og langfætla.
Tólf fuglategundir urpu í Surtsey þetta sumarið, sem telst með meira móti. Í maí var máfavarp í fullum gangi, fýll víða í varpi og teistur báru síli í björg. Grágæs var á hreiðri í miðju máfavarpinu maí en sást ekki í júlí. Hrafnapar sást með tvo unga í laupi í Surtungi í maí, og í júlí sást fjölskyldan á flugi við gíginn. Æðarvarp var staðfest á tanganum og smærri spörfuglategundir, maríuerla, þúfutittlingur og snjótittlingur, urpu líkt og undanfarin ár. Heiðlóa varp í eynni í annað sinn svo vitað sé. 
Auk framangreindra rannsókna unnu sérfræðingar Landbúnaðarháskóla Íslands að áframhaldandi vöktun á vistkerfisvirkni og rannsóknum á jarðvegsmyndun. Sérfræðingur frá Landi og skógi kannaði beitarskemmdir á gróðri af völdum smádýra og gæsa og sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun rannsökuðu tegundafjölbreytni þörunga í fjörum eyjarinnar.
Jarðhiti hefur verið mældur reglulega frá 1969. Í júlí 2025 mældist hæsti hiti 97,8°C í Vesturbunka, líkt og síðustu ár. Nokkur svæði virðast hafa hitnað frá undanförnum árum.
Eyjan hefur verið ljósmynduð með dróna annað hvert ár síðan árið 2019 vegna myndkortgerðar. Mældir voru 13 viðmiðunarpunktar með GNSS-tækni og teknar um 1.800 myndir fyrir réttmyndatöku, auk skámynda af eyjunni og Surtungi. Jafnframt var útbúið nýtt þrívíddarlíkan af eynni. Þá voru teknar myndir af steingerðu fótsporunum og tankinum á norðurtanga.
Tangi Surtseyjar tekur stöðugum breytingum og hefur á síðari árum bæði mjókkað og styst. Nyrsti oddi hans er nú sandrif og flæðir yfir á flóði. Malarkambur ver tangaflötina að hluta, en sjór hefur gengið yfir kambinn að vestanverðu og sandur kaffært fjörugróður. Á vestanverðum tanganum sést á ný hraunið sem rann úr Strompi í janúar 1967, sem lengst af hefur verið hulið strandseti. Líklegt er að tanginn haldi áfram að rýrna og eigi skamman líftíma í núverandi mynd. 
Vatns- og vindrof mótar óharðnaða gjósku utan í Austurbunka þar sem djúpir skorningar og gil hafa myndast og víða má sjá inn í móbergskjarna eyjarinnar. Niðurföll undir Vesturbunka, sem fyrst vöktu athygli sumarið 2019, eru enn sýnileg og voru ljósmynduð og hnitsett í leiðangrinum 2025.
Hellasérfræðingar frá Hellarannsóknafélaginu könnuðu hella í Surtsey og skönnuðu þá með LiDAR-tækni. Í maí voru jafnframt gerðar hitamælingar í borholum. Veðurstöðin fékk yfirhalningu þar sem mælitæki voru kvörðuð eða endurnýjuð og ný hreyfanleg myndavél sett upp á mastrinu og beint að máfavarpinu.
Á árinu birtist grein í Ecology Letters sem byggir á vöktunargögnum frá Surtsey og geiningu á fræjum úr fuglaskít og ælu sumarið 2023. Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á landnám plantna  og sýna að fuglar gegna stærra hlutverki í dreifingu fræja en áður var talið. Umfjöllun um rannsóknir í Surtsey birtist í The Guardian þar sem sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar fjölluðu um þann lærdóm sem draga má af þeim er varðar landnám og þróun lífríkis á nýju landi. Undir lok árs kom út sextánda hefti Surtsey Research á vegum Surtseyjarfélagsins. Í ritinu eru níu greinar um veðurfar, lífríki, jarðveg og jarðfræði eyjarinnar og átta sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar eru meðal höfunda.
Surtsey hefur ekki aðeins vísindalegt gildi heldur veitir hún innblástur á fleiri sviðum. Tvær listakonur tóku þátt í leiðöngrum sumarsins og unnu að verkefnum tengdum eynni.
Mynd úr SurtseyHrafnar í Surtsey. Ljósm. Svenja N.V. Auhage.
Mynd úr SurtseyLandslag í Surtsey. Ljósm. Svenja N.V. Auhage.
Mynd úr SurtseyGróður á hrauni í Surtsey. Ljósm.Svenja N.V. Auhage.

Vistgerðir á Íslandi 

Kortlagning vistgerða á Íslandi er eitt af umfangsmeiri verkefnum Náttúrufræðistofnunar. Fyrsta heildstæða vistgerðakort landsins kom út árið 2016 ásamt staðreyndasíðum fyrir 105 vistgerðir, þar af 64 á landi, 17 í ám og vötnum og 24 í fjörum, auk annarra landgerða. Kortið veitir heildaryfirsýn yfir útbreiðslu vistgerða og verndargildi þeirra og er mikilvægt verkfæri við skipulagsgerð, náttúruvernd og aðra landnýtingu.
Vistgerðakortið skiptist í landvistgerðakort (rastakort) og kort yfir vistgerðir í ferskvatni og fjöru (vektorkort). Kortlagningin byggði á umfangsmikilli vettvangsvinnu og greiningu gervitunglamynda, einkum frá RapidEye en einnig frá Landsat 8 og SPOT 5. Sumar landvistgerðir voru handkortlagðar af myndkortum en fjöru- og ferskvatnsvistgerðir voru að mestu handteiknaðar eða byggðar á öðrum fyrirliggjandi gögnum.
Landvistgerðakortið hefur verið uppfært tvisvar frá fyrstu útgáfu, árið 2018 og aftur 2024 þegar þriðja útgáfa þess tók gildi. Í þeirri útgáfu voru meðal annars gerðar svæðisbundnar leiðréttingar á grundvelli vettvangsathugana og ábendinga sem hafa borist, auk lagfæringa á afmörkun strandlengju landsins og framsetningu kortsins. Enn er í gildi fyrsta útgáfa fjöru- og ferskvatnskortsins en stefnt er að uppfærslu þess.
Undirbúningur stendur nú yfir að heildarendurskoðun landvistgerðakortsins. Sú vinna byggir að mestu leyti á Sentinel 2 gervitunglagögnum, sem veita ítarlegri upplýsingar til greiningar á gróðri og landgerðum en áður stóðu til boða. Í undirbúningnum felst meðal annars söfnun myndefnis frá sumrinu 2025 og árunum þar á undan eftir þörfum. Þróaðir hafa verið sjálfvirkir ferlar til að velja hentugar myndir, hlaða þeim niður og forvinna þær með tilliti til skýja og skugga, sem eykur skilvirkni verkefnisins en krefst mikils reikniafls. Auk gervitunglamynda verður nýtt landhæðarlíkan notað við flokkun vistgerða.
Flokkun vistgerða byggir á gervitunglagögnum sem studd eru með vettvangsupplýsingum til að tryggja áreiðanlega greiningu. Í því skyni hefur verið byggt upp staðreyndasafn vistgerðaskráninga sem nýtist bæði við flokkun og til að sannprófa niðurstöður. Safnið byggir á nýjum og eldri vettvangsskráningum Náttúrufræðistofnunar, auk gagna frá öðrum stofnunum og náttúrustofum.
Kortlagning vistgerða fyrir landið allt er umfangsmikið verkefni og felur í sér margvíslegar áskoranir. Sjálfvirkar flokkunaraðferðir gegna sífellt stærra hlutverki í vinnunni en áfram er stuðst við vettvangsathuganir og faglegt mat sérfræðinga. Stefnt er að útgáfu heildaruppfærslu landvistgerðakortsins síðla árs 2026 eða í ársbyrjun 2027.melgresiMelgresi í fjörunni við Heggstaðanúp. Ljósm. Guðni Hannesson.

Vöktun náttúruverndarsvæða  

Vöktun náttúruverndarsvæða er langtímaverkefni sem miðar að því að greina breytingar á lífríki og jarðminjum innan verndarsvæða, meðal annars vegna loftslagsbreytinga, ferðamennsku og annarrar landnotkunar. Áhersla er lögð á þá náttúrufarsþætti sem mynda undirstöðu verndargildis svæðanna, svo sem gróður, vistgerðir, fugla, spendýr og jarðminjar.
Verkefnið hófst árið 2019 og byggir á heildstæðri vöktunaráætlun fyrir landið allt, þar sem samræmdar aðferðir og sameiginlegur gagnagrunnur tryggja samanburðarhæfni gagna. Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með verkefninu í samstarfi við náttúrustofur landsins sem annast gagnaöflun en stofnunin sér um skipulagningu, samræmingu, utanumhald og varðveislu gagna. Reglubundin vöktun er forsenda þess að meta hvort verndarmarkmið náist og styður við endurskoðun verndaráætlana. 
Árið 2025 var unnið samkvæmt vöktunaráætlun fyrir árin 2023–2025. Vöktunarverkefnum var skipt í fimm meginflokka: fugla, vistgerðir, spendýr, jarðminjar og ferðamannastaði.
Fuglavöktun fór fram samkvæmt áætlun en verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér talningar á mófuglum um allt land auk talninga vatnafugla og fugla á leirum á völdum svæðum. Vöktun útvalinna tegunda, svo sem kríu, skúms og blesgæsa er einnig hluti af verkefninu.
Landvistgerðir eru vaktaðar með heimsóknum á snið um allt land á um tíu ára fresti en fjöruvistgerðir á Reykjanesi eru vaktaðar árlega. Á árinu 2025 voru heimsótt 39 landvistgerðasnið og fjögur fjörusnið.
Spendýravöktun felur í sér ítarlegt eftirlit með ábúð refagrenja í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og friðlandinu á Hornströndum. Auk þess eru hagamýs vaktaðar með lífgildrum að hausti á fjórum stöðum á landinu.
Jarðminjar eru vaktaðar með drónamyndatökum sem nýtast við myndkortagerð vegna endurskoðunar á C-hluta náttúruminjaskrár. Á árinu var jarðminjasvæðið Sleðbrjótsmelar í Jökuldal myndað í þeim tilgangi og voru loftmyndir teknar af alls 270 hektara svæði.
Vöktun ferðamannastaða felst í yfirlitsmyndatökum þar sem endurtekin ljósmyndun er notuð til að meta ástand. Þá er traðk metið og stígar mældir til að greina álag, auk þess sem fylgst er með breytingum á jarðminjum og gróðri. Á árinu voru 30 ferðamannastaðir vaktaðir.
Úrvinnsla nokkurra vöktunarverkefna stendur nú yfir með það að markmiði að meta samræmi í aðferðafræði og hvort þörf sé á endurskoðun. Sú vinna mun nýtast við forgangsröðun verkefna og mótun nýrrar vöktunaráætlunar til ársins 2030. Á komandi árum verður jafnframt lögð sérstök áhersla á frekari greiningu og birtingu gagna sem safnast hafa í verkefninu.
Mynd af HagamúsMerkt hagamús í Heiðmörk. Ljósm. Sindri Gíslason.
RitaRituvarp í Hvítbjarnarey. Ljósm. Róbert A. Stefánsson.
Mynd af SkúmsungaSkúmsungi í Húsey. Ljósm. Kolbrún Sverrisdóttir