Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Landupplýsingar eru mikilvægur þáttur í rannsókna- og vöktunarstarfi Náttúrufræðistofnunar og gegna lykilhlutverki við greiningu á náttúru, miðlun gagna og ákvarðanatöku stjórnvalda. Verkefnin fela meðal annars í sér söfnun, vinnslu, samþættingu og miðlun gagna um land, haf og andrúmsloft.
Verkefni á sviði landupplýsinga spanna meðal annars fjarkönnun, þar á meðal notkun loftmynda og gervitunglamynda, auk verkefna á sviði örnefna og samgöngugagna. Með þróun og rekstri gagnagrunna, kortasjáa og vefþjónusta er stuðlað að skilvirkri nýtingu landupplýsinga til rannsókna, skipulagsvinnu, umhverfismats og stefnumótunar.
Hluti verkefnanna fellur undir lög nr. 44/2011, um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar, sem setja ramma um söfnun, vinnslu og miðlun opinberra landupplýsinga og eru í samræmi við INSPIRE-tilskipun Evrópu­sambandsins. Markmið laganna er að tryggja aðgengi að samhæfðum og áreiðanlegum landupplýsingum í opinberri eigu. Áhersla er lögð á opnar lausnir, staðlaðar vefþjónustur og samþættingu ólíkra gagnasafna í samstarfi við innlenda og erlenda aðila. Lögin taka meðal annars til uppbyggingar og reksturs landupplýsingagáttarinnar Kortaglugga Íslands. 

Kortasjár og miðlun landupplýsinga

Miðlun landupplýsinga í kortasjám og í gegnum landupplýsingagáttir er mikilvægur þáttur í starfsemi Náttúrufræðistofnunar. Í Kortaglugga Íslands, sem er sameiginleg landupplýsingagátt fyrir landið, er veittur aðgangur að opinberum landupplýsingagögnum frá fjölmörgum aðilum, þar á meðal ríkisstofnunum, sveitarfélögum og opinberum fyrirtækjum. Gögnin eru tengd lýsigögnum sem veita upplýsingar um innihald og gæði gagnasafna, auk tengla á opnar skoðunar- og niðurhalsþjónustur, kortasjár og annað tengt efni.
Kortaglugginn sameinar hundruð kortalaga frá ólíkum aðilum og gerir notendum kleift að setja saman sérsniðnar kortayfirlitslausnir, bera saman gögn og deila niðurstöðum með tengli. Með þessu er stuðlað að aðgengilegri miðlun og skilvirkri nýtingu landupplýsinga til rannsókna, stjórnsýslu og almennrar notkunar.
Kortagluggi Íslands byggir á kortasjárkerfi sem þróað hefur verið innan Náttúrufræðistofnunar og er byggt á opnum hugbúnaði og stöðlum. Kerfið er í stöðugri þróun og hefur meðal annars verið aðlagað gögnum sem upphaflega voru ekki ætluð sem hefðbundnar landupplýsingar, svo sem tölfræðigögnum frá Hagstofu Íslands. Ýmsar stofnanir og ráðuneyti hafa nýtt sér kerfið til birtingar eigin gagna, þar á meðal Umhverfisstofnun, Minjastofnun, Byggðastofnun og Forsætisráðuneytið.
Í tengslum við grunngerð landupplýsinga hefur Náttúrufræðistofnun leiðandi hlutverk í samstarfi við opinbera aðila sem koma að uppbyggingu og miðlun landupplýsinga hér á landi. Í því sambandi skipuleggur stofnunin samráðsfundi tvisvar á ári. Markmið samstarfsins er að efla samræmingu, miðla reynslu og þekkingu og stuðla að því að gögn opinberra aðila nýtist sem best í rannsóknum, stjórnsýslu og miðlun til samfélagsins.
Kortagluggi ÍslandsSkjáskot Kortagluggi Íslands.

Örnefnagrunnur

Örnefni eru sérnöfn yfir staði og fyrirbæri í landslagi, svo sem bæi, fjöll og ár, og endurspegla bæði náttúrufar og sögu landsins. Skráning þeirra og varðveisla er mikilvægur þáttur í vernd menningararfsins. 
Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með miðlægum gagnagrunni yfir örnefni Íslands. Nýjar skráningar og yfirlesin örnefni bætast jafnt og þétt við grunninn og eru birt vikulega í kortasjám og vefþjónustum stofnunarinnar. Verkefnið er unnið í samráði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sem veitir sérfræðilega ráðgjöf þegar vafaatriði koma upp.
Örnefnagrunnurinn er gefinn út fjórum sinnum á ári til niðurhals og í desember 2025 kom út fjórða útgáfa ársins. Þá innihélt hann rúmlega 193.000 staðsett örnefni og hafði þeim fjölgað um 4.000 milli ára. Þrátt fyrir stöðuga vinnu er enn mikið verk óunnið og fjölmörg örnefni bíða staðsetningar. Mikilvægt er að nýta staðbundna þekkingu víðs vegar af landinu til að tryggja nákvæmni og heildstæði gagnagrunnsins.
Sem dæmi um umfangsmikla og langvarandi gagnaöflun má nefna skráningu örnefna og varpfugla á eyjum og skerjum á Breiðafirði, sem unnið hefur verið að í um fjóra áratugi. Verkefnið byggir á vettvangsferðum og viðtölum við 257 heimildarmenn víðs vegar um svæðið.
Alls hafa verið skráð 5.313 örnefni á eyjum, skerjum og flæðiskerjum í Breiðafirði, auk 1.500 örnefna í landi. Búið er að staðsetja meginhluta örnefnanna og verður því lokið á árinu 2026. Þá liggja fyrir upplýsingar um varp 54 fuglategunda á svæðinu. Verkefnið er eitt umfangsmesta langtímaverkefni sinnar tegundar hér á landi og hefur skilað mikilvægu framlagi til örnefnagrunnsins og þekkingar á náttúrufari Breiðafjarðar. Verkefninu er nú að ljúka og verður afrakstur þess kynntur sérstaklega á árinu 2026.
Kort sem sýnir þéttleika örnefnaKort sem sýnir þéttleika örnefna á Íslandi.

Samgöngugrunnur

Verkefnið Samgöngunet er unnið í samstarfi við Vegagerðina og miðar að uppbyggingu heildstæðs samgöngugagnagrunns fyrir Ísland. Gagnagrunnurinn er ætlaður til notkunar við leiðsögu, kortagerð og umferðarstjórnun og mun ná til allra vega landsins, með tengingum við flugvelli og hafnir. Jafnframt er gert ráð fyrir að gögn um göngu- og hjólastíga auk reiðvega, verði hluti af grunninum síðar. 
Samgönguneti er ætlað að gera kleift að miðla rauntímaupplýsingum um vegakerfið, þar á meðal um færð, umferð og ástand vega. Jafnframt mun gagnagrunnurinn innihalda upplýsingar sem nýtast við leiðsögu mismunandi farartækja, svo sem um hámarkshraða, yfirborð vega, hæðartakmarkanir og aksturstefnur. Með þessu er stuðlað að því að leiðsögukerfi og önnur stafræn samgönguþjónusta byggi á áreiðanlegum, samhæfðum og uppfærðum gögnum.
Verkefnið hefur staðið í um þrjú ár og er vel á veg komið. Á árinu 2025 náðist að koma meirihluta gagna í grunninn og er hann nú tilbúinn til markvissra prófana. Náttúrufræðistofnun vinnur náið með Vegagerðinni og sveitarfélögum að uppbyggingu og viðhaldi gagnagrunnsins, þar sem sveitarfélög bera ábyrgð á sínum hluta gagna, annað hvort með reglubundnum uppfærslum eða beinum breytingum í gegnum notendagátt. Markmiðið er að Samgöngunet verði lifandi og sífellt uppfærður gagnagrunnur þannig að breytingar á vegakerfinu skili sér hratt í stafræna þjónustu og leiðsögukerfi.