Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Rannsóknir og verkefni Náttúrufræðistofnunar spanna breitt fræðasvið og miða öll að því að efla þekkingu á náttúru Íslands. Rannsóknir og langtímavöktun á jarðfræði, lífríki og vistkerfum eru meginþáttur starfseminnar. Samhliða því sinnir stofnunin rekstri grunninnviða, svo sem landmælikerfa, og úrvinnslu og miðlun gagna. Með samþættingu gagna, aukinni nýtingu fjarkönnunar og þróun sjálfvirkra aðferða er unnið að því að efla yfirsýn, bæta aðgengi að upplýsingum og styrkja grunn fyrir upplýsta ákvarðanatöku.
Í undirköflum á næstu síðum er gerð grein fyrir helstu verkefnum ársins 2025 á sviði landmælinga, fjarkönnunar, landupplýsinga, jarðfræði, grasafræði og dýrafræði, sem og þverfaglegum verkefnum þar sem ólík fræðasvið mætast.
LandmælingarViðmiðunarpunktur mældur fyrir drónaflug. Ljósm. Guðni Hannesson.
FjarkönnunStrandlínumælingar í Arnarfirði. Ljósm. Guðni Hannesson.
JarðfræðiFrostveðrað yfirborð Langafjalls á Breiðadalsheiði. Ljósm. Karl Stefánsson.
Gróðurmælingar í SkorradalGróðurmælingar í birkiskógi í Skorradal. Ljósm. Járngerður Grétarsdóttir.
gæsamerkingarUnnið að grágæsamerkingum. Ljósm. Sunna Björk Ragnardóttir.
Refur á HornströndumRefur á Hornströndum. Ljósm. Ester Rut Unnsteinsdóttir.