Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Lífríkisvernd á norðurslóðum (CAFF) er samþykkt sem heyrir undir Norðurskautsráðið, þar sem Ísland á aðild. Náttúrufræðistofnun skipar fulltrúa Íslands í stjórn CAFF, auk þess sem starfsfólk stofnunarinnar tekur virkan þátt í störfum sérfræðingahópa innan samstarfsins. Þar má nefna hópa um líf­fræðilega fjölbreytni, vöktun lífríkis, flóru, gróður, sjófugla og friðlandanet.
Í maí 2025 tók Ísland við formennsku CAFF til tveggja ára, eða til maí 2027. Snorri Sigurðsson, sviðsstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun, var skipaður formaður. Hlutverk formanns er að hafa yfirsýn og bera ábyrgð á framkvæmd og skipulagi verkefna CAFF í samstarfi við stjórn og skrifstofu (Secretariat). Í tengslum við formennskuna leiddi formaður fyrsta stjórnarfund CAFF undir íslenskri formennsku í september 2025. Fundurinn fór fram á netinu, stóð yfir í fjóra daga og tóku yfir 80 manns þátt. Formaður tók jafnframt þátt í fjölda annarra verkefnafunda á netinu og sótti Hringborð Norðurslóða (Arctic Circle), þar sem hann tók þátt í viðburðum ásamt öðrum fulltrúum CAFF.
Á árinu 2025 tóku aðrir fulltrúar Íslands í starfi CAFF, þar á meðal frá Náttúrufræðistofnun, þátt í ýmsum fundum á vegum CAFF. Í janúar funduðu sérfræðingar þurrlendishóps CBMP í Kanada þar sem undirbúin var ný vinnuáætlun hópsins til næstu ára. Í nóvember fór fram fundur á Íslandi fyrir verkefnis- og hópstjóra innan CBMP-vöktunarverkefnis CAFF. Sviðsstjóri dýrafræði og ferskvatns hjá Náttúrufræðistofnun, sem leiðir þurrlendishóp CBMP, tók þar þátt ásamt öðrum sérfræðingum stofnunarinnar. Fulltrúar Íslands í sérfræðingahópum CBMP og hópstjórar sitja fjarfundi með reglubundnu millibili; allir sérfræðingahóparnir hittast mánaðarlega og auk þess sitja hópstjórar sérstaka samhæfingarfundi þar sem samræming milli hópa fer fram.mynd af grágæsahreiðriGrágæsahreiður í Viðey í Þjórsá. Ljósm. Borgný Katrínardóttir.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni (CBD) er alþjóðlegur samningur sem nær öll ríki heims eiga aðild að. Markmið hans er þríþætt: að vernda líffræðilega fjölbreytni, stuðla að sjálfbærri nýtingu lífrænna auðlinda og tryggja sanngjarna og réttláta skiptingu arðs að slíkri nýtingu. Náttúrufræðistofnun hefur tekið þátt í fundum aðildarríkjanna og leiðir aðkomu Íslands að starfi vísinda- og tækninefndar samningsins (SBSTTA).
Í október 2025 sótti sviðsstjóri náttúruverndar fund vísinda- og tækninefndar í Panama ásamt fulltrúa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
AEWA-samningurinn (African-Eurasian Waterbird Agreement) miðar að því að samræma aðgerðir til verndar votlendisfuglum á farleiðum þeirra. Samningurinn nær til flestra fuglategunda sem verpa á Íslandi eða hafa viðkomu hér. Náttúrufræðistofnun annast framkvæmd samningsins hér á landi í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Þá á stofnunin einnig fulltrúa í alþjóðlegum vinnuhópi um sjálfbæra og virka stjórn gæsastofna (EGMIWG).
Á árinu 2025 var unnið markvisst áfram með breskum og skoskum samstarfsaðilum að undirbúningi alþjóðlegrar stjórnunar- og verndar­áætlunar fyrir bresk-íslenska varpstofn grágæsa, meðal annars með reglulegum fundum og greiningu gagna um stöðu stofnsins og sjálfbæra nýtingu. Fulltrúar Náttúru­fræði­stofnunar, Náttúrustofu Austurlands og Náttúru­verndar­stofnunar sóttu fund vinnuhóps um stjórn gæsastofna (EGM IWG10) í júní í Brussel, þar sem rætt var um framkvæmd og eftirfylgni alþjóðlegra stjórnunar- og verndar­áætlana fyrir evrópska gæsastofna, meðal annars fyrir grænlenska og íslenska varpstofn helsingja. Í framhaldi var haldinn fundur um stöðu blesgæsastofnsins, sem stendur höllum fæti, og rætt hvort grípa þurfi til sértækra verndaraðgerða.
Aðildaríkjafundur AEWA-samningsins (MOP9) var haldinn í Bonn dagana 11.–14. nóvember. Þar tóku fulltrúar Náttúrufræðistofnunar og Náttúruverndarstofnunar virkan þátt í vinnu og fundum um framkvæmd samningsins. Þar lagði Ísland fram breytingartillögu um að grænlensk-íslenski varpstofn helsingja yrði stjörnumerktur við tilfærslu í dálk A, vegna skilyrða um endurskoðun eftir 20% fækkun á 20 árum. Niðurstaðan felur í sér að stofninn færist í hærri verndarflokk, en að veiðar geti áfram verið heimilar að því marki sem þær eru í samræmi við samþykkta alþjóðlega stjórnunar- og verndaráætlun. Einnig var gengið frá því að Ísland taki sæti varamanns í fastanefnd AEWA til næstu þriggja ára (fram að MOP10), sem styrkir aðkomu Íslands að áframhaldandi stefnumótun og eftirfylgni samningsins.
mynd af rauðhöfðaöndRauðhöfðaönd. Ljósm. Ólafur Karl Nielsen.
Álftir með ungaÁlftir með unga. Ljósm. Ester Rut Unnsteinsdóttir.
Mynd af stelkiStelkur. Ljósm. Guðni Hannesson.
IPBES (Intergovernmental Science-Policy Platform on Biodiversity and Ecosystem Services) er sjálfstæð milliríkjastofnun sem hefur það hlutverk að efla tengsl vísinda og stefnumótunar á sviði líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfaþjónustu. Markmið vettvangsins er að styðja við vernd og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni, langtímavelferð manna og sjálfbæra þróun. Ísland gerðist aðili að IPBES í apríl 2025 og var Náttúrufræðistofnun falið að bera ábyrgð á þátttöku Íslands í starfi vettvangsins. Sviðsstjóri náttúruverndar er aðaltengiliður og sótti undirbúningsfund Evrópuþjóða í Þýskalandi í desember 2025 í aðdraganda 12. aðildarríkjafundar IPBES sem var haldinn í febrúar 2026 í Manchester í Bretlandi.
Bernarsamningurinn hefur það að meginmarkmiði að vernda evrópskar tegundir villtra plantna, dýra og vist­gerðir sem þarfnast verndar. Hann er ein helsta undirstaða náttúruverndar í Evrópu og hefur haft veruleg áhrif á löggjöf og framkvæmd náttúruverndar í aðildarríkjum, meðal annars hvað varðar skráningu, flokkun, mat og vöktun náttúru. Frá árinu 2021 hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið haft umsjón með framkvæmd samningsins hér á landi en starfsfólk Náttúrufræðistofnunar á fulltrúa í sérfræðinganefndum hans, meðal annars um framandi ágengar tegundir og nefnd um net náttúruverndarsvæða, svokallað smaragðsnet (Emerald Network).
CITES-samningurinn (The Convention on International Trade in Endangered Species of Wild Fauna and Flora) er alþjóðlegur samningur sem miðar að því að stjórna og hafa eftirlit með alþjóðlegri verslun með tegundir plantna og dýra sem eru í útrýmingarhættu. Náttúrufræðistofnun gegnir hlutverki vísindalegs stjórnvalds samkvæmt samningnum og veitir ráðgjöf varðandi tegundir sem ekki falla undir nytjastofna sjávar. Fulltrúi stofnunarinnar sótti undirbúningsfund í utanríkisráðuneytinu fyrir aðildarríkjafund CITES sem fór fram í nóvember 2025 en fulltrúi ráðuneytisins sótti fundinn fyrir Íslands hönd.
GBIF (Global Biodiversity Information Facility) er alþjóðlegt samstarf sem miðar að því að gera gagnasöfn um líf­fræðilega fjölbreytni aðgengileg á einum sameiginlegum vettvangi og tengja saman ólíkar gerðir náttúru­fars­upplýsinga. Fulltrúi Náttúrufræðistofnunar gegnir hlutverki samhæfingarstjóra (e. node manager) og er það í höndum sviðsstjóra vísindasafna og miðlunar sem sótti fund Evrópu- og Mið-Asíudeildar GBIF í Waterford á Írlandi í maí. Forstjóri Náttúrufræðistofnunar var í september skipaður aðalfulltrúi Íslands (e. head of delegation) af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Stofnunin deilir hluta gagna sinna um útbreiðslu tegunda á vettvangi GBIF.
Ramsarsamningurinn (The Convention on Wetlands) er alþjóðasamningur sem miðar að vernd votlendissvæða og dýrategunda sem eru háðar votlendi. Náttúrufræðistofnun gegnir því hlutverki að veita umsagnir um verndargildi votlendissvæða og miðla upplýsingum um lífríki þeirra, sérstaklega um fuglategundir. Að beiðni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vann stofnunin, í samstarfi við Náttúruverndarstofnun og Land og skóg, minnisblað um æskileg næstu skref varðandi þátttöku Íslands í samningnum, sem skilað var fyrri hluta árs 2025.
ProGEO (The European Association for the Conservation of the Geological Heritage) eru evrópsk félagasamtök sem hafa það að markmiði að stuðla að verndun jarðminja og landslags og efla fræðslu um jarðfræðileg verðmæti. Samtökin eru í samstarfi við Alþjóðajarðfræðisambandið (IUGS) og Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) og eiga að auki í samskiptum við UNESCO, jarðvanga og önnur náttúruverndarsamtök. Náttúrufræðistofnun er aðili að ProGEO og á fulltrúa Íslands innan samtakanna.
UNESCO-jarðvangar (UNESCO Global Geoparks) eru alþjóðleg samtök sem hafa það markmið að efla fræðslu innan jarðvanga, með áherslu á jarðminjar, lífríki og menningarminjar og stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu og starfsemi í heimabyggð. Á Íslandi eru tveir jarðvangar sem hafa hlotið viðurkenningu UNESCO: Katla jarðvangur og Reykjanes jarðvangur. Starfsmaður Náttúrufræðistofnunar á sæti í Íslandsnefnd UNESCO-jarðvanga.
mynd af FagrafossFagrifoss í Skaftárhreppi. Ljósm. Guðni Hannesson.
EPOS-Ísland er samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar, Háskóla Íslands, Íslenskra orkurannsókna og Veðurstofu Íslands, sem leiðir verkefnið. Markmið þess er að byggja upp innviði í formi öflugrar gagnaþjónustu sem veitir opið aðgengi að mikilvægum jarðvísindagögnum og þjónustum frá Íslandi. Gagnaþjónustan er hluti af samevrópsku gagnaþjónustunni EPOS ERIC (European Research Infrastructure Consortium) sem rekin er af EPOS (The European Plate Observing System). Veitt er gjaldfrjálst aðgengi að jarðvísindagögnum þar sem lögð er áhersla á gæði, stöðlun og lýsigögn.
EPOS-Ísland er styrkt af Innviðasjóði Rannís og hefur verkefnið þegar skilað sér í bættu aðgengi að rafrænum jarðvísindagögnum frá Íslandi. Afrakstur verkefnisins styður við vísindastarf og styrkir samkeppnisstöðu íslenskra rannsókna á alþjóðavettvangi.
Á árinu var gagnasafn bergsýna úr virka gosbeltinu fullklárað til miðlunar í EPOS en beðið er eftir að lokið verði við uppsetningu tengingar hjá Veðurstofu Íslands. Gögn um borsvarf voru jafnframt undirbúin til miðlunar og tenging fyrir gögn um borkjarna var uppfærð. Þá var áfram unnið að gæðayfirferð jarðfræðikorta, með áherslu á berggrunnskort í mælikvarða 1:250.000 og kort af nútímahraunum í mælikvarða 1:25.000. Lýsigögnum um GPS-stöðvar var viðhaldið og þau uppfærð eftir þörfum.
VectorNet er evrópskt samstarfsverkefni sem miðar að því að kortleggja útbreiðslu og fylgjast með þróun sýklabera í Evrópu, svo sem mítla, moskítóflugna og lúsmýs. Náttúrufræðistofnun tekur þátt í verkefninu með vöktun, gagnaöflun og miðlun upplýsinga hér á landi. Þáttaka í Vectornet hefur skapað mikilvægan vettvang fyrir samstarf við erlenda sérfræðinga og lagt grunn að sameiginlegum rannsóknum á sýklaberum hér á landi.
Evrópska umhverfisupplýsinga- og vöktunarnetið (Eionet) er samstarfsnet Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) og aðildarríkja. Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar sat fundi og málstofur á vegum netsins á árinu, meðal annars innan málefnamiðstöðvar (European Topic Center) um líffræðilegan fjölbreytileika og vistkerfi, þar sem stofnunin á tvo fulltrúa.
Verndun villtra nytjajurta og skyldra tegunda (Crop Wild Relatives) er norrænt samstarfsverkefni sem Náttúrufræðistofnun á fulltrúa í. Verkefnið er leitt af NordGen. Í júní 2025 tók stofnunin þátt í vinnufundi í Svíþjóð. Auk þess var safnað fræjum frá fjórum villtum íslenskum stofnum nytjajurta, sem hafa verið sett í langtímavarðveislu hjá NordGen.
Norrænt samstarf korta- og fasteignastofnana er viðamikið samstarf korta- og fasteignastofnana sem Náttúrufræðistofnun tekur þátt í. Níu stofnanir alls staðar að á Norðurlöndum, að Færeyjum og Grænlandi meðtöldum, taka þátt í samstarfinu og korta- og fasteignastofnanir frá baltneskum löndum koma að vinnuhópum í einstaka tilvikum. Á árinu 2025 var sjónum meðal annars beint að öryggismálum tengdum landupplýsingum og aðgengi að þeim.
Eurogeographics eru samtök korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Þau mynda faglegan vettvang sem hefur meðal annars það hlutverk að samræma kortagögn í Evrópu og efla þekkingu meðlima á málefnum sem eru efst á baugi hverju sinni á starfssviði þeirra. Náttúrufræðistofnun er meðlimur í EuroGeographics og tekur virkan þátt í starfseminni, meðal annars með því að vinna og senda inn gögn frá Íslandi í miðlæga gagnagrunna.
Copernicus-áætlunin er umfangsmikið verkefni á vegum Evrópusambandsins og á Náttúrufræðistofnun fulltrúa í stýrihópum þess fyrir Íslands hönd. Hlutverk verkefnisins er að vakta stöðu umhverfisins á landi, sjó og lofti og stuðla um leið að bættu öryggi jarðarbúa. Nánar er fjallað um Copernicus annars staðar í skýrslunni. [tengill á Copernicus-kaflann]
Nordic Geodetic Commission (NKG) eru samtök sérfræðinga á sviði landmælinga frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Megintilgangur samtakanna er að efla samvinnu og miðlun fagþekkingar. Starfið byggist aðallega á starfi vinnuhópa en auk þess fundar stjórn landmælingaráðsins um tvisvar á ári. Þetta samstarf er mjög mikilvægt fyrir Náttúrufræðistofnun þar sem það veitir sérfræðingum hennar aðgang að mörgum af færustu sérfræðingum og öflugustu stofnunum heims á þessu sviði. 
Global Geospatial Information Management (GGIM) er alþjóðlegt samstarfsverkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna sem miðar að því að efla og samræma notkun landfræðilegra gagna. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samræmingu á sviði landupplýsinga á milli ríkja, stuðla að samræmdum stöðlum og stefnum fyrir söfnun, úrvinnslu og miðlun landfræðilegra gagna, efla getu ríkja til að nota þau í stefnumótun og ákvarðanatöku, einkum í tengslum við markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun til ársins 2030, og auka skilning á mikilvægi landupplýsinga og kortagagna, meðal annars til að bregðast við aukinni tíðni náttúruhamfara og áfalla í heiminum. Náttúrufræðistofnun hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu frá upphafi og fylgist vel með framvindu þess.
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Náttúrufræðistofnun hefur skipað annað tveggja sæta Íslands í dómnefnd umhverfisverðlaunanna frá árinu 2023. Árið 2025 sótti fulltrúi Íslands fund dómnefndarinnar í Stokkhólmi í september en Svíþjóð fer með formennsku. Þema ársins var aðkoma félagasamtaka að umhverfismálum.