Fara í innihald
Kaflaskil - sagan
Grasafræðirannsóknir Náttúrufræðistofnunar miða að því að efla þekkingu á gróðri Íslands, fjölbreytni hans, útbreiðslu og viðbrögðum við umhverfisbreytingum. Verkefnin ná yfir skráningu og kortlagningu plantna og sveppa, rannsóknir á líffræðilegri fjölbreytni og erfðafræði, sem og vöktun á tegundum og umhverfisþáttum.

Flóra Íslands

Hjá Náttúrufræðistofnun er unnið að skráningu plöntutegunda á Íslandi og kortlagningu á útbreiðslu þeirra. Jafnframt er aflað upplýsinga um búsvæði plantna og sýni tekin af sem flestum tegundum til varðveislu í plöntusafni stofnunarinnar. Þá eru stundaðar rannsóknir á líffræðilegri fjölbreytni plantna sem spanna allt frá stofnerfðafræði, flokkunarfræði og tegundalíffræði til rannsókna á plöntusamfélögum og líflandafræði.
Árið 2025 var unnið að fjölbreyttum rannsóknum sem styrkja þekkingu á íslenskri flóru og varpa ljósi á hvernig plöntur dreifast, nema land og bregðast við umhverfisbreytingum. Stærsti áfanginn var birting vísindagreinar í Ecology Letters sem byggir á áratugalöngum gögnum um landnám plantna á Surtsey. Niðurstöðurnar sýna að ekki er alltaf unnt að spá fyrir um hvaða tegundir ná fótfestu á grundvelli einfaldra hugmynda um frædreifingu heldur skipta staðbundnar aðstæður og tilviljanakenndir þættir, svo sem áhrif fugla, oft miklu máli. Þetta hjálpar okkur að skilja betur hvernig flóra á Íslandi mótast á nýjum og röskuðum svæðum.
Á árinu birtist einnig grein í NeoBiota um útbreiðslu stafafuru (Pinus contorta) á Íslandi og möguleika tegundarinnar til að breiðast út utan ræktunar. Niðurstöðurnar nýtast við mat á áhrifum framandi plantna og styðja við skynsamlegar ákvarðanir í landnýtingu og náttúruvernd. Þá kom út grein í Quaternary Science Reviews þar sem einir (Juniperus communis) var nýttur til að draga upp mynd af því hvernig sumarhiti á Íslandi hefur breyst í gegnum aldirnar og setur sú rannsókn núverandi hlýnun í skýrara samhengi.
Einnig hélt áfram vinna við hæruburst (Campylopus introflexus). Í nýjum áfanga verkefnisins er unnið að rannsóknum á erfðafræði mosans með það að markmiði að meta hvort hann hafi borist til landsins í einu eða fleiri tilvikum og hvernig hann dreifist milli svæða. Niðurstöðurnar munu styrkja vöktun og viðbrögð ef tegundin reynist skaðleg viðkvæmum búsvæðum.
Árið 2025 var jafnframt mikilvægt í rannsóknum á tunguskollakambi, burkna sem vex í heitum jarðvegi á jarðhitasvæðum. Þar benda niðurstöður til þess að tegundin geti aðlagast svo hratt að skýrar breytingar og aðgreining geti orðið án þess að plantan breyti litningafjölda. Handrit var fullunnið og sent til birtingar og mun grein birtast síðar.
Gömul einisplantaGömul einisplanta (Juniperus communis) í Mývatnssveit. Ljósm. Pawel Wasowicz.

Vöktun válistaplantna

Reglulegt eftirlit er haft með fundarstöðum plantna á válista með það að markmiði að meta ástand tegunda og fylgjast með breytingum í stofnstærð og útbreiðslu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Grasagarðinn í Reykjavík, Lystigarð Akureyrar og náttúrustofur á landinu.
Maríulykill (Primula stricta) var kannaður á þremur stöðum í Eyjafirði í júní 2025. Tegundin fannst á öllum þremur vaxtarstöðunum, þó í mismiklu magni. Best virtist hún dafna á vaxtarstað vestan megin Eyjafjarðar.
Verkefni um uppruna íslenskra rósa hlaut styrk frá Erfðanefnd landbúnaðarins á árinu. Verkefnisstjórn var í höndum Landbúnaðarháskóla Íslands, í samstarfi við Grasagarð Reykjavíkur og Náttúrufræðistofnun. Í júlí 2025 voru fjórir villtir stofnar þyrnirósar (Rosa spinosissima) og einn villtur stofn glitrósar (Rosa dumalis) heimsóttir og sýni tekin til DNA-greiningar. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á uppruna íslenskra rósastofna og erfðabreytileika á milli og innan innlendra stofna.
Gljástör (Carex pallescens) er sjaldgæf starategund sem einungis er þekkt frá tveimur fundarstöðum hér á landi. Eini þekkti vaxtarstaður tegundarinnar á Suðurlandi var heimsóttur í september og reyndist stofninn í góðu ástandi við athugun.
Á árinu 2025 fékk Grasagarður Reykjavíkur styrk úr Safnasjóði til ræktunar válistaplantna. Verkefnið er samstarfsverkefni Grasagarðs Reykjavíkur og Náttúrufræðistofnunar. Í október var farin vettvangsferð á Suðurland með það að markmiði að safna gróum af sjaldgæfum burknum. Heimsóttir voru tveir staðir, Skaftafell og Fagurhólsmýri. Í Skaftafelli var safnað gróum af svartburkna (Asplenium trichomanes) og á Fagurhólsmýri af klettaburkna (Asplenium viride). Auk þess standa yfir ræktunarprófanir á skeggburkna (Asplenium septentrionale) og tunguskollakambi (Struthiopteris fallax), sem safnað var árið 2024. Þar með standa nú yfir ræktunarprófanir á fjórum burknategundum í Grasagarði Reykjavíkur. Markmið verkefnisins er að þróa aðferðir til ræktunar tegundanna frá gróum, undirbúa langtímavarðveislu þeirra ex situ (utan náttúrulegs búsvæðis) og tryggja viðbúnað til að styrkja villta stofna með útplöntun þegar þörf krefur.
Samtals voru árið 2025 gerðar úttektir á 18 stofnum og 13 válistategundum í samstarfi við Grasagarð Reykjavíkur. Auk framangreindra tegunda voru skoðaðar stefánssól (Papaver radicatum subsp. stefanssonii), vatnsögn (Crassula aquatica), mýramaðra (Galium palustre), flæðalófótur (Hippuris tetraphylla), sandlæðingur (Lysimachia maritima), flóajurt (Persicaria maculosa) og blátoppa (Sesleria albicans).
TunguskollakamburTunguskollakambur er á válista og vex á örfáum jarðhitasvæðum. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.

Funga Íslands – sveppir

Náttúrufræðistofnun safnar gögnum um sveppi, skráir tegundir, kortleggur útbreiðslu og rannsakar búsvæði. Jafnframt er safnað sýnum af sem flestum tegundum til varðveislu í sveppasafni stofnunarinnar.
Almenningur gegnir mikilvægu hlutverki í öflun upplýsinga um sveppi, þar sem fólk hefur oft samband við stofnunina með fyrirspurnir eða sendir inn eintök sem vekja athygli þess. Sveppafræðingur stofnunarinnar heldur úti Facebook-hópnum Funga Íslands – sveppir ætir eður ei, þar sem fólk getur fengið fræðslu og deilt myndum af sveppum sem það finnur.
Árið 2025 var mjög gjöfult á matsveppi; þeir spruttu 2–3 vikum fyrr en undanfarin ár og fundust fram í byrjun október. Hér á eftir eru dregin fram dæmi um merkilegar tegundir sem fundust eða voru greindar á árinu. Þar á meðal er ný tegund sem lýst var með íslensku einkenniseintaki, tvær tegundir sem ekki höfðu áður fundist hérlendis og sjaldgæfar tegundir sem hafa fundist á einum eða fleiri stöðum nýlega; tvær þeirra mynda aldin sín snemma vetrar og hafa aukið útbreiðslu sína á síðustu árum.
Fræðiheiti
Íslenskt heiti
Upplýsingar
Tilachlidium brachiatum 
mynd af Tilachlidium brachiatum 
Vankynssveppur í samnefndri ætt  í trjábeðjubálki sem sníkir á öðrum sveppum. Fannst í þriðja sinn hérlendis í ágúst 2025, þar sem hann óx sem fíngerð hvít svepptögl á aldinum borusvepps á rotnandi trjágrein í elsta hluta Kjarnaskógar við Akureyri. Áður hefur tegundin fundist tvisvar, á hattsveppunum  Flammula alnicola og Pluteus cervinus í Kristnesi í Eyjafirði og í Mjóanesi á Héraði. Ljósm. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir. 
Chlorophyllum rhacodes 
mynd af  Garðskermill
Garðskermill
Hattsveppur sem myndar fremur stór ljós aldin með brúnum flekkjum á hatti. Fannst í þriðja sinn í íslenskri náttúru í byrjun október 2025, við göngustíg, rétt utan við garð norðan við Glerá á Akureyri. Tegundin fannst fyrst í garði í Innbænum á Akureyri árið 1960 og aftur í garði í Eyjafjarðarsveit árið 2015, en hún hefur einnig stöku sinnum fundist innanhúss í blómapottum. Ljósm. Þórunn Pálma Aðalsteinsdóttir. 
Aspergillus luchuensis 
Mynd af Sólfruggu
Sótfrugga 
Fannst í köngli stafafuru, Pinus contorta, á Snæfellsnesi í júlí 2025. Birtist sem  svart duft eða kúlur í glufum köngulsins. Gróberar eru stífir stilkar með útbelgdum enda, þaktir löngum kylfulaga stoðfrumum sem bera þyrpingar af nokkuð hólklaga pyttlum. Gróhausar eru svartir og duftkenndir á yfirborði. Gróin hnöttótt, brún og virðast slétt en með dekkri görðum á yfirborði, um 3,5–4,5 µm í þvermál. Þetta er fyrsti fundur tegundarinnar hérlendis. Ljósm. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir. 
Inocybe islandica 
Mynd af Keluhöddu. Ljósm. Ellen Larsen
Keluhadda
Ný tegund sem lýst var út frá sýni úr Hrafnkelsdal, sem er einkenniseintak (holotype)  tegundarinnar en hluti sýnisins (isotype) er varðveittur í sveppasafni Náttúrufræðisstofnunar.  Tegundin óx í breiðu af rjúpnalaufi, Dryas octopetala, í léttbeittu heiðamólendi. Hún hefur einnig fundist í norðurhluta Svíþjóðar og benda niðurstöður kjarnsýrugreiningar og samanburður við slíka gagnabanka til þess að tegundin sé sjaldgæf. Sveppurinn er fremur lítill, gulleit eða drapplituð hadda með sléttum eða dulþráðóttum hatti sem er hvelfdur eða með lágan og lítt áberandi hnúf. Stafurinn er allur með méluðu yfirborði og endar í hnúð. Gró eru sléttveggja og þumlur þykkveggja með kristöllum á framenda. Aldin eru án fanhulu.  Sveppnum var safnað og lýst af Ellen Larsson (nr. 1840, bls. 503–505). Íslenskt nafn tegundarinnar er dregið af ánni Hrafnkelu í Hrafnkelsdal. Ljósm. Ellen Larsson.
Exidiopsis effusa     
Mynd af Exidiopsis effusa. Ljósm. Tómas Þorsteinsson.  
 
Sveppurinn sést sjaldan sjálfur en myndar svonefnt íshár á dauðum birkigreinum fyrripart vetrar við rakar og kaldar aðstæður. Íshár getur orðið nokkuð langt og myndast úr vökva sem sveppurinn gefur frá sér og frýs við þessar aðstæður. Aldin sveppsins er þunn, ljós, fölfjólublá eða gráleit hlaupkennd skán með fitukenndri áferð sem þekur rotnandi laufvið. Aldinum hefur ekki verið safnað en víða hafa náðst ljósmyndir af íshári, einkum á höfuðborgarsvæðinu og í skóglendi í nágrenni þéttbýlisins. Sveppurinn hefur fundist í Bolholtsskógi á Rangárvöllum og í Skorradal í Borgarfirði en oftast hefur hann sést í Elliðaárdal í Reykjavík. Ljósm. Tómas Þorsteinsson. 
Macrotyphula fistulosa 
Mynd af Pípuklubba. Ljósm. Hlynur Stefánsson
Pípuklubba
Brúnn, kylfu- eða hólklaga sveppur sem er holur að innan og getur orðið nokkuð hár. Hann vex á rotnandi greinum í sverðinum en aldin koma upp í skógarbotninum, stundum upp úr snjó þar sem þau þroskast síðla hausts og fram á vetur. Tegundin var áður talin sjaldgæf hérlendis en hefur á síðustu 5–7 árum fundist víða um land. Ljósm. Hlynur Steinsson. 
Hohenbuehelia petalodes 
Mynd af Flipasnubbu. Ljósm. Valgeir Árnason
Flipasnubba 
Fannst fyrst hérlendis árið 2016 í Hólavallagarði. Aldin líkjast hálfum trektum og vaxa upp nokkur saman í hóp. Ljósar fanir ganga langt niður stafinn og á þeim eru sérhæfðar frumur sem veiða þráðorma. Tegundin greindist einnig í kjarnsýrugreiningu á sveppum í skógarjarðvegi á Suðurlandi. Sumarið 2024 óx hún á malarbornum bletti í garði á Akureyri. Ekki er þó víst hvort svipaður sveppur sem fannst í Heiðmörk við Reykjavík um svipað leyti tilheyri sömu tegund, þar sem hatturinn var þurr að sjá en ekki glansandi.   Ljósm. Valgeir Árnason 2024 
Gamundia xerophila 
mynd af Gamundia xerophila. Ljósm. Guðriður Gyða Eyjólfsdóttir.
Sveppurinn fannst í Surtsey í ágúst 2010, í laut í grónu hrauni sem líktist mólendi, við jaðar elsta mávavarpsins. Þetta var fyrsti fundur tegundarinnar hérlendis. Sveppurinn er hattsveppur með dæld eða nafla í miðjum fölbrúnum hatti og fremur gisnum, ljósum fönum. Gró eru ljós og hrjúf og næstum hnöttótt til egglaga, 6,0–7,0 × 5,0 µm að stærð. Eggþumlur eru nokkuð stórar og mjókka til framenda. Aldin er um 25 mm hátt með 9 mm breiðan lághvolflaga hatt og jafnan staf sem er um 0,7 mm í þvermál. Ljósm. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir. 

Greiningar á myglusveppum

Náttúrufræðistofnun tók frá árinu 2006 á móti sýnum úr byggingum til greiningar á myglusveppum sem þar kynnu að vaxa. Sýni bárust bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum en á síðustu árum hafði hlutfall sýna frá fyrirtækjum aukist verulega. Þar sem mygla í húsnæði getur verið heilsuspillandi leiddi aukin þekking á áhrifum hennar til talsverðrar eftirspurnar eftir greiningum. Að loknu mati á verkefninu sumarið 2025 var ákveðið að hætta greiningum á innimyglu úr sýnum úr byggingum frá og með 1. september 2025.
Á tímabilinu frá ársbyrjun til 31. ágúst 2025 voru greind alls 654 sýni, þar af 602 frá fyrirtækjum og 52 frá almenningi. Meðalafgreiðslutími frá móttöku sýna til afhendingar niðurstaðna var átta dagar. Greiningarniðurstöður sýna að funga rakra bygginga er fjölbreytt; til þessa hafa yfir hundrað tegundir innimyglu verið greindar á stofnuninni. Sumar tegundir eru afar algengar, aðrar hafa aðeins fundist einu sinni og þó nokkrar tegundir hafa reynst nýjar í fungu Íslands. Þótt smásveppir séu langalgengastir innanhúss þá birtast stöku sinnum aldin hattsveppa og í illa förnum þakviði og öðrum blautum viðarafurðum mynda kólfsveppir sem valda fúa stundum aldin.
Meðal algengustu sveppategunda í sýnum úr húsnæði eru tegundir af ættkvíslinni Cladosporium, einkum Cladosporium sphaerospermum og Cladosporium cladosporioides. Einnig má nefna tegundir úr smáeskingsætt (Microascaceae), svo sem Microascus paisii (áður Scopulariopsis brumptii), auk tegunda af ættkvíslinni Aspergillus, þar á meðal Aspergillus versicolor (litafrugga) og Aspergillus glaucus (áður Eurotium herbariorum, gráfrugga). Þá má nefna Monodictys putredinis, Sterigmatobotrys macrocarpus, Chaetomium globosum (kúlustrýnebba), Tritirachium oryzae og Sarocladium strictum (áður Acremonium strictum) sem dæmi um aðrar tegundir sem finnast reglulega í sýnum.
Myglusveppir á ætisskálGróhirslur ,,svarta blómavasalaga sveppsins" í grautfúnu timbri úr þaki húss á höfuðborgarsvæðinu. Hugsanlega er um að ræða sníkjusvepp á Rhinocladiella atrovirens sem venjulega finnst með.

Frjómælingar

Náttúrufræðistofnun sinnir frjómælingum í andrúmslofti með það að markmiði að afla upplýsinga um magn frjókorna og tegundafjölbreytni þeirra.
Frjómælingar stofnunarinnar byggja á sjálfvirku frjóvöktunarkerfi sem veitir rauntímaupplýsingar um styrk og tegundir frjókorna í lofti. Kerfið nýtir hátæknibúnað sem greinir frjókorn með stafrænum myndgreiningaraðferðum og gervigreind og gerir kleift að vinna úr mælingum hratt og á samræmdan hátt. Niðurstöður mælinga eru birtar á vef stofnunarinnar innan nokkurra mínútna frá því að gögn berast, og eru uppfærðar reglulega yfir daginn. Þetta fyrirkomulag tryggir gott aðgengi að upplýsingum sem nýtast bæði einstaklingum með frjóofnæmi og heilbrigðisstarfsfólki.
Náttúrufræðistofnun tekur þátt í evrópska verkefninu EUMETNET AutoPollen Programme (2024–2028), sem miðar að uppbyggingu sjálfvirks og samræmds vöktunarkerfis fyrir frjókorn og sveppagró um alla Evrópu. Verkefnið nær yfir alla þætti upplýsingakeðjunnar, frá sjálfvirkum rauntímamælingum og gagnavinnslu til þróunar lokaafurða og þjónustu í nánu samstarfi við notendur. Markmið verkefnisins er að bæta nákvæmni í greiningu frjókorna, samræma gagnaöflun milli landa og hraða úrvinnslu og birtingu niðurstaðna. Verkefnið byggir á víðtæku samstarfi sérfræðinga úr ólíkum fræðigreinum og samræmdum vinnubrögðum milli landa.
Árið 2025 var lögð rík áhersla á miðlun þekkingar til almennings. Þannig birtust greinar á vef Astma- og ofnæmisfélags Íslands og í tímariti félagsins, Astmi og ofnæmi, sem fjalla um sjálfvirkar frjókornamælingar og hvernig þær geta bætt lífsgæði ofnæmissjúklinga. Jafnframt birtist í Læknablaðinu Læknablaðinu viðtal við Ewu Mariu Przedpełska-Wasowicz, sérfræðing hjá Náttúrufræðistofnun, um frjókornamælingar á Íslandi og notkun sjálfvirkra mæliaðferða.
Á árinu voru einnig birtar tvær ritrýndar vísindagreinar sem fjalla um rannsóknir á frjókornum. Annars vegar grein í tímaritinu Agricultural and Forest Meteorology um uppruna og dreifingu birkifrjókorna (Betula spp.) á Íslandi og hins vegar samanburðarrannsókn á frjótímabili birkis og grasa á Íslandi og í Póllandi í tímaritinu Aerobiologia. Niðurstöður rannsókna voru jafnframt kynntar á alþjóðlegum ráðstefnum. Í janúar voru kynntar niðurstöður samanburðargreiningar á hefðbundnum frjómælingum og nýjum sjálfvirkum mæliaðferðum á 83. vísindaráðstefnu Háskóla Lettlands og á 60. þingi pólska grasafræðifélagsins var fjallað um hvernig landfræðileg staðsetning og loftslag mótar frjótímabil birkis og grasa.
Á árinu var jafnframt unnið að rannsóknum á loftbornum sveppagróum í tengslum við verkefni á vegum NAWA og Erasmus+.Söfnun frjókornasýnaSöfnun frjókornasýna. Ljósm. Pawel Wasowicz.

Vöktun þungmálma og brennisteins í mosa á Íslandi

Loftborin mengun hefur verið vöktuð hér á landi á fimm ára fresti frá árinu 1990 með mælingum á styrk þungmálma í tildurmosa (Hylocomium splendens). Vöktunin er hluti af evrópsku verkefni sem hefur það markmið að kortleggja uppsprettur mengandi efna í andrúmslofti og fylgjast með breytingum yfir tíma. Mosar taka upp efni úr úrkomu og ryki beint í gegnum blöð sín og endurspeglar styrkur efna í mosasýnum því magn þeirra í andrúmslofti í umhverfinu. Verkefnið er dæmi um svokallaða lífvöktun (biomonitoring), þar sem lífverur eru nýttar til að meta ástand umhverfis.
Tildurmosa hefur verið safnað víðs vegar um landið á föstum söfnunarpunktum. Net söfnunarpunkta er þéttara í nágrenni stærstu iðjuvera landsins. Á árinu 2025 var safnað 168 mosasýnum á tímabilinu 21. júlí til 5. september. Söfnunin hófst á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum, því næst á Norðurlandi, Austurlandi og miðhálendinu. Í lok sumars var safnað sýnum í Hvalfirði, á Reykjanesi og í Hafnarfirði. Að söfnun lokinni voru mosasýnin fryst, síðan hreinsuð og þurrkuð í lok árs og send til efnagreiningar við Háskólann í Lundi. Niðurstöður úr greiningu á styrk þungmálma og brennisteins munu liggja fyrir á fyrri hluta árs 2026.
Nýjasta evrópska samantektarskýrslan um verkefnið er aðgengileg á vef ICP Vegetation. Nýjasta skýrslan um vöktunina hérlendis kom út árið 2018.
 MosabreiðaMosabreiða í Eldhrauni. Ljósm. Guðni Hannesson.

Gróðureldar

Gróðureldar geta valdið verulegum skemmdum á vistkerfum og losa jafnframt gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið. Í kjölfar bruna hefst endurvöxtur gróðurs og landnám plantna og dýra, þótt hraði og leið þeirra ferla sé mjög breytileg. Áhrif elda á land ráðast meðal annars af árstíma, hversu djúpt eldurinn nær ofan í svörðinn, hvaða gróðurlendi brennur, hvort bruninn er samfelldur eða á blettum og hvort lífrænn jarðvegur er til staðar eftir brunann.
Frá árinu 2006 hefur Náttúrufræðistofnun kortlagt og skráð flesta umfangsmeiri gróðurelda utan þéttbýlis. Tíðni og umfang elda eru breytileg milli ára og ráðast að miklu leyti af árferði og veðurfari á útmánuðum, einkum á suður- og vesturhluta landsins þar sem eldar hafa verið tíðastir. Árið 2025 var hagstætt hvað gróðurelda varðar og lítið um bruna, nema í lok árins þegar kviknaði í sinu út frá flugeldum í nokkrum tilfellum.
Í september 2025 kom út skýrslan Iceland, toward an integrated wildfire risk management diagnostic and recommendations report sem var afrakstur verkefnis hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um endurskoðun á forvörnum og viðbragðsáætlunum vegna gróðurelda. Náttúrufræðistofnun tók þátt í verkefninu ásamt mörgum öðrum aðilum.
GróðureldarGróðureldar á Reykjanesi. Ljósm. Olga Kolbrún Vilmundardóttir.

Erfðaupplag birkis á Íslandi

Unnið er að rannsóknum á erfðaupplagi birkis (Betula pubescens) á Íslandi í samstarfi Náttúrufræðistofnunar, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Náttúrustofu Norðurlands vestra og Lands og skógar. Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri, Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar og Rannís styrkja verkefnið. Verkefnið miðar að því að varpa ljósi á stofngerð birkis á Íslandi, erfðabreytileika þess og genaflæði milli tegunda.
Birki er áhugavert viðfangsefni í stofnerfðafræðilegum rannsóknum á áhrifum búsvæðaröskunar, enda hefur útbreiðsla þess dregist verulega saman frá landnámi. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að erfðablöndun á sér stað á milli fjórlitna birkis og tvílitna fjalldrapa (Betula nana), sem gefur af sér þrílitna blendinga og því áhugavert að skoða mögulegt genaflæði og hlutverk gena í útlitsbreytileika.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að greiningu á uppruna og erfðasamsetningu íslenskra birkistofna og liggja nú fyrir niðurstöður úr þeim þáttum verkefnisins. Árið 2025 beinist vinnan að úrvinnslu erfðamengis íslenska birkisins sem hefur verið heilraðgreint og sett saman. Unnið er að annóteringu erfðamengisins, sem felur í sér að greina og skrásetja gen og önnur virk svæði þess. Að þeirri vinnu lokinni verður erfðamengið birt og gert aðgengilegt á vefnum og mun það skapa mikilvægan grunn fyrir frekari rannsóknir á erfðafræði birkis á Íslandi. Áhugavert verður að skoða erfðafræði aðlögunar og hlutverk gena í viðnám gegn skordýraplágum.
BirkiBirki. Ljósm. Guðni Hannesson.