Fara í innihald
Kaflaskil - sagan

Umsagnir  

Veiting umsagna er stór hluti af verkefnum Náttúrufræðistofnunar og berast beiðnir um umsagnir í hverri viku varðandi mál af ýmsum toga. Stofnunin er lögbundinn umsagnaraðili í mörgum tilvikum en þó ekki öllum. Meirihluti umsagna tengist skipulagsáformum sveitarfélaga eða mati á umhverfisáhrifum framkvæmda sem Skipulagsstofnun fer með. Aðrar umsagnir varða leyfisveitingu ýmissa stofnana, svo sem Náttúruverndarstofnunar vegna athafna á friðlýstum svæðum og leyfi til ljósmyndunar friðaðra fugla, Umhverfis- og orkustofnunar í tengslum við námuvinnslu og rannsóknir á auðlindum í sjó og á landi og Matvælastofnunar vegna ræktunar skelfisks og innflutnings lífvera. Auk þess veitir Náttúrufræðistofnun umsagnir til Náttúruverndarstofnunar um friðlýsingar og stjórnunar- og verndaráætlanir í undirbúningi, til Alþings um lagafrumvörp og þingsályktunartillögur og til ráðuneyta um ýmsar stefnumótandi áætlanir og reglugerðir.
Á árinu 2025 afgreiddi stofnunin 392 formlegar umsagnir sem er nokkur fækkun frá fyrra ári. Þar eru ekki meðtaldar óformlegar umsagnir um drög að áætlunum, friðlýsingarskilmálum og öðrum málum sem stofnunin veitir álit á á undirbúningsstigi áður en endanleg skjöl eru kynnt opinberlega. Umsagnir eru aðgengilegar á vef stofnunarinnar, nema þar sem svarað var beint í Skipulagsgátt með litlum eða engum athugasemdum.
Meðal umsagna á árinu voru álit á drögum að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hverfjall í Mývatnssveit, breytingartillögu á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulþjóðgarðs vegna Vonarskarðs og viðauka við sömu áætlun er varðar Hoffellslambatungur. Til Alþingis veitti stofnunin umsagnir um tillögur til þingsályktunar um leyfi til að veiða álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma og áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða, auk frumvarps til laga um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráælun og öðrum lögum á sviði umhverfis og orkumála.
Skipulagsmál voru fyrirferðarmikil og veitti stofnunin umsagnir um skipulagslýsingar og tillögur, meðal annars vegna heildarendurskoðunar aðalskipulags Skaftárhrepps, svæðisskipulags Vestfjarða og Suðurnesja, auk fjölmargra breytinga á gildandi aðal- og deiliskipulagi. Þá veitti stofnunin Skipulagsstofnun umsagnir um matsskyldu framkvæmda, matsáætlanir og umhverfismatsskýrslur. Þar voru vegagerð, virkjanir, skógrækt, fiskeldi á landi og í sjó, uppbygging ferðaþjónustu, orkuframleiðsla, flutningskerfi raforku og efnistaka meðal helstu viðfangsefna, auk annarra framkvæmda.mynd af heitri uppsprettuHeit uppspretta í Vonarskarði. Ljósm. Guðni Hannesson.

Nefndir og ráð  

Sérfræðingar stofnunarinnar sitja í samstarfshópum Náttúruverndarstofnunar vegna vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun landslagsverndarsvæðis Kerlingarfjalla, náttúruvættisins Dynjanda og friðlandsins Surtseyjar. Auk þess á stofnunin fulltrúa í ýmsum nefndum og ráðum, þar á meðal samráðshópi um málefni Grenlækjar, samráðsvettvangi um ráðstöfun tekna af sölu veiðikorta, sérfræðinganefnd um framandi lífverur, verkefnisstjórn rammaáætlunar og ráðgjafarnefnd fagstofnana vegna laga um stjórn vatnamála. Þá leiddi sviðsstóri náttúruverndar stýrishóp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem skilaði hvítbók um nýja stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni í júní 2025.

Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða  

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða með því að veita stjórnvöldum og vinnuhópum áætlunarinnar faglega ráðgjöf á sviði náttúrufars og landupplýsinga. Framlag stofnunarinnar byggir á samþættingu sérfræðiþekkingar á jarðfræði, lífríki og landslagi, ásamt greiningu og miðlun landfræðilegra gagna sem nýtast við mat á verndargildi og nýtingarkostum landsvæða.
Stofnunin styður vinnu rammaáætlunar með gerð korta, staðbundnum greiningum og ráðgjöf um túlkun gagna og niðurstaðna. Í því samhengi voru þróaðar kortasjár sem auðvelda vinnuhópum og ráðuneytum að bera saman valkosti og meta möguleg áhrif orkunýtingar, meðal annars með hliðsjón af landslagi, veðri og aðstæðum á hverjum stað. Með þessu er stuðlað að upplýstri ákvarðanatöku og heildstæðri sýn á náttúru landsins við mat á vernd og orkunýtingu landsvæða.